Prestafélagsritið - 01.01.1925, Qupperneq 20
Prestaféiagsriiio. Kjarni kristindómsins og umbúðir.
15
miðar hann alt við þroska trúar og siðgæðislífsins. Alt er leyfi-
legt, sem uppbyggir. Þar eru takmörk frelsisins.
Sami postuli segir einnig, að þar sem andi drottins sé, þar
sé frelsi (2. Kor. 3, 17.). Hann miðar við kjarnann, ekki við
umbúðirnar.
Ennfremur talar hann um »frelsi vort, það er vér höfum
sem tilheyrandi Kristi Jesú«, og segir: »til frelsis frelsaði Kristur
oss«; »því að þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis; notið að-
eins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðr-
um í kærleika*.1)
Með þessum og öðrum orðum berst postulinn gegn þeim
mönnum, er hneppa vilja lærisveina Krists í lögmálsfjötra, eða
leggja vilja áherzlu á bókstaf, en ekki anda. »Því að bókstaf-
urinn deyðir*, segir Páll, »en andinn lífgar* (2. Kor. 3, 6.).
Þessi ummæli Páls hefir reynslan staðfest. Hún hefir sýnt
og sannað, að andinn lífgar, andi Krists er mönnum nóg leið-
beining, til þess að gjöra þá bæði fasta fyrir og frjálsa. En
bókstafurinn hefir deytt, lagt lífið í dróma. Öll bókstafsþrælkun
og bókstafsþjónusta, er vill neyða menn til að verða eins í
öllu því, er heyrir til umbúða eða ytri búnings kristindómsins,
hefir verið skaðleg kristindómi einstaklinga og heilla þjóða.
Reynslan hefir sýnt, að kristindómslífið hefir getað íklæðst
margvíslegum ytri búningi, og að enginn einn ákveðinn bún-
ingur er þar öllum nauðsynlegur, svo að ekki megi á einhvern
hátt frá víkja.
Þvert á móti hefir tilbreytni og fjölbreytni í hinu ytra reynst
hagkvæm kristindómslífinu, og verið einkenni andlegs fjörs
og áhuga.
Til eru gömul ummæli, eignuð Ágústínusi kirkjuföður, sem
eru þannig: „Eining í því naudsynlega, frelsi í vafaairiðum,
í hvívetna kærleikur."2)
1) Gal. 2, 4.; 5, 1. 13.
2) „In necessariis unitas, in dubiis libertas, in omnibus caritas". —
Sbr. ummæli kirkjulegs friðarvinar frá 17. öld, er nefndi sig Rupertus
Meldenius, í riti hans „Paraenesis votiva pro pace ecclesiae" (1627): „In
necessariis unitas, in non necessariis libertas, in utrisque caritas".