Prestafélagsritið - 01.01.1925, Page 29
24 Ragnar Ófeigsson: Prestaféiagsritiö.
fyrri tilveru. Þessi trú sætti Indverjann við lífið — sætti hann
við mannfélagsmeinin. En í huga hans varð ríkust tilfinningin
fyrir hverfleikanum og mætti dauðans — og í stað þess að sjá
sigur lífsins í endurfæðingum sálnaflakksins, lét hann hug
sinn dvelja við sigur dauðans, sem eltir bráð sína úr einu
lífinu í annað.
Menn gátu þolað og sætt sig við ókjör lífsins, en þráin
var þó lausn frá þjáningum og böli, frá sálnaflakki og endur-
fæðingum, sem dauðinn drotnar yfir. Þráin var lausn frá sjálfu
lífinu og hvíld í algleymi Brahma.
Sálnaflakkstrúin og siðferðislegur kjarni hennar, sá, að hver
maður uppsker það, sem hann sáir — varð og til þess, að
sætta menn við ranglæti stéttamunarins, sem snemma mynd-
aðist á Indlandi — og önnur þjóðfélagsmein. Endurbætur og
byltingar koma einmitt ekki til mála, af því að hver maður
átti skilið það sem hann leið. Ranglætið varð að réttlæti, hver
og einn gat sagt við sjálfan sig: »Alt á ég skilið, sem á mér
hrín, í fyrri tilveru skóp ég mér örlög þessi«.
En þrátt fyrir þolgæðið bar þó harla mikið á endurlausnar-
þránni. Menn fóru ýmsar leiðir til þess að leita hvíldar. Á
næstu öldum fyrir Búddha tók munklífið að eflast mjög og
samfara því lögðu menn stund á meinlæti. Þá tóku menn og
að iðka töfra og leggja hug sinn eftir æðri vizku og valdi.
Komu þannig fram fjöldamörg fræðikerfi, sem áttu að kenna
mönnum að ráða dulrúnir tilverunnar. Fræði þessi og iðkanir
hétu einu nafni Yoga. Búddha hefir sýnilega verið kunnugur
þessum fræðum, og mun að því vikið síðar. Margar af anda-
stefnum þessum höfðu þó litla framtíðarþýðingu. Það var
helzt ef mikilhæfir menn risu upp, að boðskapur þeirra hafði
áhrif. Margir slíkir menn voru fyrirrennarar Búddha. Kunn-
astur þeirra allra er Nataputta, sem í ritum Búddhatrúar-
manna er talinn villutrúarmaður, en sem talinn er helgur
maður af játendum hinnar svonefndu Jaina-irúar. Þeir hafa
gefið honum tignarheitið Maha-vira, þ. e. hin mikla hetja.
Nataputta lifði fram á daga Búddha og ekki ólíklegt að þeir
hafi kynst persónulega.