Prestafélagsritið - 01.01.1925, Síða 46
Prestafélagsritiö.
Búddha og andastefna hans.
41
gjört sé ráð fyrir, að til sé einhver alt önnur vitund, sem er
annars eðlis en sú, er vér fáum skilið.
Allir eru hins vegar sammála um það, að Nirvana sé lausnin
frá þessu lífi og að sá, sem inngenginn sé í Nirvana, eigi
ekki afturkvæmt i þennan heim eða þetta líf og þurfi því
eigi að kvíða elli né dauða. Og jafnvel þeir, sem bjarga vilja
Nirvana frá því að teljast algleymi að skilningi Búddatrúar-
manna, játa skorinort, að Nirvana hljóti að vera sama sem
tilveruleysi eða algerður dauði í hugum Vesturlandabúa, sem
hugsa og álykta samkvæmt lögum sinnar rökfræði. Því verður
varla neitað, að Austurlandamenn og sérstaklega sumir Ind-
verjar hugsa með öðrum hætti en vér, og það sem fyrir vorum
sjónum er heilaspuni eða heimspeki, er í þeirra augum reynslu-
þekking. Ég á hér við hugleiðsluvísdóm þeirra.
Læt ég svo útrætt um þetta nú, þó að ýmislegt fleira mætti
segja ótrúlegt og furðulegt um þessi efni. Búddhisminn er
vaxinn sem kynlegur kvistur úr kynlegum jarðvegi. Misskiln-
ingur væri að telja hann algyðistrú eða Panþeisma. Hann er
gagnsýrður af guðræknisanda, en þekkir þó enga guðsdýrkun
í venjulegum skilningi. Og þó að margt í Búddhatrú sé skylt
ýmsu í Upanishad-ritunum, er þó greinilegur munur á anda-
stefnum þessum. Búddha virðist eigi hafa leitað hvíldar í
heimssálinni og Nirvana er annað en samruni eða sameining
Brahma eða Atman.
Smámsaman hefir hinn upphaflegi Búddhismi tekið breyt-
ingum og enn í dag finnum vér hann í gerfi hinnar svo-
nefndu guðspeki. Vér sjáum hann í nýjum klæðum, sem sniðin
eru eftir hugsunarhætti og menningu Vesturlanda. Guðspekin
er mjög menguð Búddhisma, enda er mælt, að fyrsti forseti
guðspekifélagsins — Olcott ofursti — hafi opinberlega gjörst
Búddhisti skömmu fyrir andlát sitt. Ekki verður því neitað,
að siðalærdómur Búddha sé háleitur og mikið og göfugt verk
hefir hann int af hendi fyrir Austurlönd. Það er sannmæli,
sem Höffding segir í Trúarheimspeki sinni: Búddha hefir flutt
Asíu friðarboðskap — Kristur gaf Evrópu sitt >Excelsior«
(þ. e. hærra, til guðs).