Prestafélagsritið - 01.01.1925, Síða 63
58 Árni Sigurðsson: Prestafélagsritiö.
um komi svo skorinorð og skýr mótmæli frá kunnugum og
málsmetandi mönnum, að þau eyði aftur þeim glæsivonum
kaþólskra, sem orð og ummæli kardínálans hafi vakið, þegar
bók hans kom út og varð kunn, en henni var dreift út í
Hollandi og Þýzkalandi í stórum stíl. Er mér nú kunnugt um,
að svör Norðmanna, Svía og Finna hafa komið og verið birt
í Þýzkalandi, og hefi ég sjálfur við hendina hin sænsku og
finsku svör. Um viðhorf Dana í þessu máli hefi ég ekki heyrt.
En hér er nú að ræða um viðhorf vort og vorrar kirkju.
Kem ég þá fyrst að för Vilhjálms kardínála hingað til lands
og frásögn hans sjálfs um það, sem hann sá og heyrði hér.
Kardínálinn kom hingað til lands í júlímánuði 1923 frá Dan-
mörku, og fór svo héðan yfir Noreg, Svíþjóðu og Finnland.
Hér var honum tekið með kostum og kynjum, enda hafði
almenningur úr evangeliskri átt verið búinn undir komu hans
og hvattur til að taka svo merkum og sjaldgæfum gesti vel,
enda ekkert móti því að segja, það þvert á móti sjálfsögð
kurteisi, og jafnframt nauðsyn vegna orðstírs þjóðarinnar út á
við. Hjartanlegastar voru að sjálfsögðu viðtökur þær, sem
kardínálinn hlaut hjá sínum fámenna söfnuði hér í borginni.
En einnig af annarra hálfu var honum fullkomin virðing sýnd,
enda kom hann öllum fyrir sjónir sem hámentað prúðmenni.
Vera má þó, að kurteisi sú, sem honum var sýnd af opin-
berri hálfu og sumra blaðritara, hafi nálgast þarflausu dekur, því
að til slíks hættir oss Islendingum mjög, þar sem tignir gestir
útlendir eiga í hlut. Og slíkt dekur getur stigið ókunnugum
svo til höfuðs, að þeir taki að gera sér skakkar hugmyndir
um hugarfarið sem bak við liggur. Og þannig er það sál-
fræðilega mjög skiljanlegt, að tiginn fulltrúi stórrar stofnunar
færi henni til tekna þá undirgefni, sem honum er auðsýnd
vegna tignarljómans, sem yfir honum sjálfum hvílir, og stöðu
hans, einkum ef honum, samhliða því, eru gefnar hlutdrægar
upplýsingar.
Kem ég nú að skýrslu sjálfs kardínálans um ferð sína,
ummælum hans um ísland og íslenzka þjóð, skilningi hans á
kristnisögu Islands og frásögn hans um horfur og fyrirætlanir