Prestafélagsritið - 01.01.1925, Side 67
62 Ámi Sigurðsson: PrestafélagsritiB.
hinnar heilögu og almennu kristilegu kirkju veraldarinnar. En
hin kaþólska kirkja er þess alls ófús, að viðurkenna heimild
vora til að bera það nafn. Hennar takmark er að útrýma
evangeliskri kirkju, og að því verki vinnur hún með engu
minni krafti en kristniboði meðal heiðingja. Því að eins og
kaþólski klerkurinn þýzki sagði 1924: »Herirnir eru tveir, ann-
ars vegar hin heilaga kaþólska kirkja, hins vegar andkristur-
inn«, þ. e. heiðingjar og »villutrúarmenn«. Þessi er vafalaust
skoðunin, og samkvæmt þeirri skoðun er barist. Og eigi er
vert að láta það villa sig, þótt hægt sé farið til að byrja með.
Kaþólska kirkjan gleymir eigi í baráttu sinni þeirri viturlegu
starfsreglu, sem fólgin er í latneska orðtakinu: »Festina
lente*1)- Hún reiknar eigi í árum, heldur öldum. Og þar sem
hún vill ná fótfestu, fer hún í engu óðslega. En þó geta
beztu menn hennar hlaupið á sig og dreymt stóra drauma út
af litlu tilefni. Það má sjá á bók hans hágöfgi, Vilhjálms van
Rossum. Mörg atriði í henni eru eins og skjalfestar sannanir
þess, að »errare humanum est«.2)
Það er augljóst og efalaust, að kaþólska kirkjan ætlast hér
mikið fyrir. Mér er sem ég sjái í anda framkvæmdir hennar
hér á næstu árum: Ný, vegleg kirkja hér í sjálfum höfuð-
staðnum, fleiri trúboðsstöðvar, nóg fé til að reka barnaskóla
og reisa spítala um landið, og vaxandi viðleifni að ávinna trú-
skiftinga með öllu lifandi móti, unz öll hin íslenzka þjóð fellur
sem fullþroskaður ávöxtur í skaut þeirrar kirkju, sem telur sig
hina einu sáluhjálplegu, og afneitar harðlega vesalings sið-
bótarkirkjunum, sem langar að mega teljast liðir í þeirri heild,
sem heitir heilög, almenn, kristileg kirkja.
Lítum á aðstöðu kaþólsku kirkjunnar hér á landi sem stend-
ur. Hún hefir á undanförnum tíma farið hægt og gætilega
að öllu. Hún hefir rekið hér spítala, sem um fjölda ára hefir
komið í hinar beztu þarfir. Innan veggja þess spítala hefir
verið unnið fagurt líknarstarf meðal sjúkra af St.-Josephs-
1) Sbr. íslenzka máltækið: Kapp er bezt með forsjá.
2) Þ. e. það er mannlegt að skjátlast,