Prestafélagsritið - 01.01.1925, Page 74
Presiafélagsriiið.
Evangeliskt viðhorf.
69
ef til vill blessi ekki minningu Kristjáns þriðja og »kirkju-
ordinantiu« hans, mun hún aldrei hætta að þakka Guði þau
andleg gæði, sem siðabótin hefir veitt henni. Og ég trúi því
að það sé í beztu samræmi við hennar eðlisfar, að einstakl-
ingarnir megi leita Guðs síns og frelsara unz þeir finna í fullu
frelsi og með fullri persónulegri ábyrgð, í stað þess að láta
utanaðkomandi vald fyrirskipa sér hverju trúa skuli. Það mun
vera fslenzku skapi næst að elska þá kirkju, sem »vill aðeins
laða og leiða«. Og þó að hin íslenzka kirkja muni fús til
bróðurlegrar samvinnu við hverja þá kristna kirkjudeild, sem
kann að sundurgreina kjarna og umbúðir, og vill umgangast
systurkirkjur sínar í kærleika Krists, þá fæ ég ekki skilið
að hún láti afskiftalausa ásókn þeirra kirkjufélaga, er binda
vilja sálir og samvizkur mannanna og útiloka þá alla sem
arga villutrúarmenn og heiðingja, sem ekki vilja klæða sitt
innra líf að öllu í sömu ytri form, þótt andinn og kjarninn
hjá þeim sé hinn sami. Það hefir verið minn kærasti draum-
ur, að sjá allar kirkjudeildir, sem játa ]esú Krist, gera sam-
band og systurfrið sín á milli til þess að snúast gegn sam-
eiginlegum óvinum. En þær vonir mínar eru að blikna, og
það sem mér sýnist mestu valda í því efni, er hið ósveigjan-
lega og ógnandi viðhorf kaþólsku kirkjunnar, eins og það
birtist t. d. í ferðasögu kardinála von Rossum, og hér heima
í hinni hálf unggæðislegu bók H. K. Laxness, sem æðsti
maður kaþólska trúboðsins hér hefir ritað á: »Imprimatur«.
Eg er í rauninni ekkert hræddur um að Island gefi sig
nokkru sinni undir vald hins »óskeikula« páfa í Róm, því að
til þess treysti ég of vel andlegum þroska þjóðarinnar. En
hitt er ég hræddur um, að barátta geti orðið hér og hún
hörð, og að litlar vonir sé unt að gera sér um samtök og
samvinnu hinna kaþólsku og evangelisku kirkna í framtíðinni. —
Virðulegu tilheyrendur! Vér höfum nú stuttlega hugleitt það,
hverjar muni fyrirætlanir kaþólskar kirkju hér, og hefir um
það efni verið leitt fram hið sterkasta vitni, þar sem er sjálfur
yfirmaður Evróputrúboðsins, Vilhjálmur kardináli van Rossum.
Og vér höfum litið á aðstöðu kaþólsku kirkjunnar hér og