Prestafélagsritið - 01.01.1925, Qupperneq 76
Prestafélagsritið.
Evangeliskt viðhorf.
71
— En sannevangeliskir menn vilja, að allar þeirra samkomur
og alt þeirra líf megi verða Kristi og honum einum til
dýrðar. Það sýnir mun hins kaþólska og evangeliska við-
horfs frá einni hlið. Og ég efast eigi um að hið evangeliska
viðhorfið er vort, og að vér viljum í samræmi við það gæta
Guðs hjarðar.
En svo var það í öðru lagi tilgangur þessa erindis, að beina
því til biskups og prestastefnunnar, hvort það álitist æskilegt
eða mögulegt að verða við þeirri beiðni þýzkra mótmælenda
að senda héðan í nafni íslenzkrar kirkju og þjóðar mótmæli
gegn röngum staðhæfingum van Rossums er oss snerta. —
Eins og ég gat um í upphafi, hafa þrjú Norðurlöndin, sem
ég veit um með vissu, sent sín svör. En um Danmörku er mér
ekki eins kunnugt. Svörin frá andlegum stéttum Svíþjóðar og
Finnlands hefi ég við hendina, og eru þau hin ákveðnustu,
og bera vott um þunga vandlætingu og réttláta gremju vegna
þeirra undarlegu staðhæfinga, sem van Rossum hefir ílátið frá
sér fara um þjóðir þeirra. Og undirrituð eru þessi svör af
ágætum mönnum, svo sem Lindberg biskupi í Váxiö og
Pfannenstill dómprófasti og prófessor í Lundi fyrir Svía og
Gummerus biskupi og Dr. Lehtonen fyrir Finna. Má af því
ráða, að hér hafa hinir beztu menn fundið ástæðu til að svara
vegna kirkju sinnar, og vegna systursafnaðanna í Þýzkalandi,
sem eiga nú mjög í vök að verjast gegn framsókn kaþólsk-
unnar. Væri að vísu freistandi, að taka upp ýmislegt úr svör-
um þessum, en til þess vinst eigi tími.
En ef yður, virðulegu starfsbræður, sýndist ástæða til að
senda slíkt svar, mætti á ýmsan hátt koma því fyrir. Vafa-
samt er að nefnd úr synodus gæti lokið því héðan af að
semja slíkt svar. En stjórn Prestafélagsins gæti gert það, líkt
og t. d. í Svíþjóð. Og eins mætti fela biskupi það á hendur
að gera það, sem honum þætti við eiga í þessu máli, eða þá
kennurum guðfræðideildar Háskólans o. s. frv. En áður en
þér þvertakið með öllu fyrir það, að senda slíkt svar, þá í-
hugið, að beztu menn systurkirknanna á Norðurlöndum hafa
álitið það fulla nauðsyn að senda svar, og skýra frá sínu