Prestafélagsritið - 01.01.1925, Síða 82
Prestafélagsritiö.
Skúli prófastur Gíslason.
77
Skúli flutti þar upp úr sér, hefði verið alveg nýr fróðleikur
engu síður fyrir prófessorinn sjálfan en fyrir lærisveina hans.
Árið 1856 vígðist Skúli Gíslason til prests að Stóranúpi í
Árnessýslu. Þar hafði verið á undan honum prestur að nafni
Guðmundur Lassen, ógn lélegur kennimaður og illa að sér.
Má því geta nærri, að Hreppamönnum hafi þótt breytast
mikillega til batnaðar, er þeir fengu jafn skörulegan og lærðan
prest eftir þann liðlétting sem séra Guðmundur hafði verið,
enda dáðu þeir hann mjög sem kennimann þessi ár, sem þeir
fengu að halda honum sem presti. En þau ár urðu aðeins
fjögur. Því að 1859 var séra Skúla veitt Breiðabólstaðar-
prestakall í Fljótshlíð og fluttist hann þangað í fardögum 1860.
Á Breiðabólstað dvaldist séra Skúli til æfiloka (1888) og má
með sanni segja, að hann væri alla tíð talinn í fremstu röð
kennimanna hér sunnanlands. Því að auk þess sem hann
þótti bera af flestum öðrum sem skörungur í ræðustólnum og
skyldurækinn í öllum greinum embættis síns, þá gerðist hann
snemma umsvifamikill búhöldur, er sat staðinn með frábærum
dugnaði og svipaði snemma í mörgu tilliti til hinna fornu
kirkjuhöfðingja-hér á landi.
I skjalasafni biskupsembættisins eru geymd svo hljóðandi
ummæli prófastsins í Rangárþingi, séra Ásmundar heit. ]óns-
sonar í Odda um séra Skúla, frá fyrstu prestskaparárum hans
á Breiðabólstað:
»Séra Skúli Gíslason prestur að Breiðabólstað stundar
embætti sitt afbragðsvel, bæði yfirhöfuð og í einstökum grein-
um og hefir mesta orð á sér fyrir ræður sínar og prestsverk
öll. Hann er reglumaður og hegðar sér verðuglega sinni köllun,
og samlyndi hans við söfnuðinn er sérlega gott, og er hann
þar í mesta áliti og afhaldi. Stað og kirkju hirðir hann ágæta-
vel og hefir þegar mikið bætt prestsetrið Breiðabólstað með
vatnsveitingum, sem aldrei fyrr hafa verið tíðkaðar, og allri
ræktun. í einu orði, hvort sem litið er á gáfur, lærdóm, lifnað
eða embættisfærslu, þá mun óhætt að telja hann einhvern
merkasta prest þessa lands.«