Prestafélagsritið - 01.01.1925, Blaðsíða 87
82
Dr. Jón Helgason:
Prestafélagsritiö.
uðu sökum mannkosta hans og andlegra yfirburða. Og öllum
þótti þeim unun að sækja heim þennan yfirmann sinn.
Svo farast orð í bréfi til mín einum af prestum þeim, er
undir hann voru gefnir sem prófast (séra Olafi Ólafssyni frí-
kirkjupresti): »Þann tíma, sem við kyntumst hvor öðrum, fékk
ég á honum bæði ást og virðing. Eg var kornungur bæði að
æfiárum og embættisaldri, en hann var nær sextugu og með
langa og merkilega prestsþjónustutíð að baki. Þar sem hann
nú var stórgáfaður maður og lærður vel, fróður í flestar áttir
og glöggskygn og aðgætinn á alt, sem fyrir augu bar, þá
liggur það í augum uppi, að hann hafði mér miklu að miðla
og ég margt af honum að læra. Hann var mér í senn sem
faðir, eldri bróðir og reyndur vinur; lærði ég margt af honum
þau árin, sem við lifðum saman þarna austur frá, sem mér
hefur að gagni orðið í störfum og lífi; vildi ég óska, að
samverutími okkar hefði mátt lengri verða«.
Meðal presta þeirra, er undir séra Skúla voru gefnir sem
prófast, var eins og fyr segir séra Matthías Jochumsson. En
þeir áttu, sem fyr segir, lítt skap saman svo ólíkir sem þeir
voru. Má vera, að séra Matthías hafi átt erfitt með að þola
útásetningasemi prófasts, er gekk jafnt yfir alla.
í einu bréfi sínu minnist séra Skúli á embættisbróður sinn
í Odda sem kennimann. Honum farast þar svo orð: »Hálfó-
ánægður er séra M. með að hann gjöri ekki maklega lukku
sem prestur; en ég hefi sagt honum, að til þess þurfi annað-
hvort að prédika kristindóm eða veraldarhyggindi.* Séra
Skúli hefir auðsjáanlega álitið, að séra Matthías gerði hvorugt
né gæti gert. Af því að séra Matthías hefir í »söguköflum«
sínum hreitt allkaldranalega í prófast sinn á Oddaárunum
(sem hann annars mintist svo hlýlega látins í eftirmælum eftir
hann, sem prentuð eru í »Ljóðmælum«), þætti einhverjum ekki
ófróðlegt að heyra hvern vitnisburð séra Skúli gefur honum
sem prófastur í skýrslu sinni til biskups haustið 1882. Sá
vitnisburður hljóðar á þessa leið:
»Séra Matthías Jochumsson prestur í Odda kom í næst-
liðnum fardögum að hinu sameinaða Odda- og Keldnaþinga-