Prestafélagsritið - 01.01.1925, Page 94
Prestafélagsritiö.
KIRK]UGARÐARNIR.
Formáli.
Á aðalfundi Prestafélagsins 1922 var samþykt að leita upp-
lýsinga hjá prestum um ástand kirkjugarða. Það var vel kunn-
ugt, að þeir eru of víða í mikilli vanhirðu, og væri mikil þörf
á, að úr því væri bætt.
Seint hefir gengið að ná skýrslunum, og voru þó prentuð
eyðublöð send öllum prestum. Þó hefir nú borist svo mikið
af skýrslum að varla er meira að vænta hér eftir.
Skal nú stuttlega gerð hér grein fyrir helztu niðurstöðun-
um og jafnframt rætt nokkuð og gerðar tillögur um ýmsa
liði. Fylgi ég hér að mestu skýrsluforminu, sem sent var út.
1. Garðstæðið.
Jarðvegurinn er víðast hvar sagður góður eða sæmilegur,
mold og leir eða sandur og smámöl, víða djúpt niður, eða
að minsta kosti svo að nægir. Allvíða er móhella í botni,
sem tálmar. í nokkrum stöðum er ofgrunt, en lagast smám-
saman við uppfylling, þegar reitirnir eru útgrafnir. Sumstaðar
er stórgrýtt, og er það mjög bagalegt, og þarf að athuga það
vandlega þegar garðstæði er valið, því það er bæði tafsamt
og gerir grafir óreglulegar og ljótar. Sumstaðar ber á vatni í
Sröfum og er það mjög bagalegt. Vmist er það af því að
mýrlent er og er þá ekki gott við að gera, eða vegna þess
að hallar að garðinum og má bæta úr með ræsi, enda hefir
sumstaðar verið gert. Á einum eða tveimur stöðum er það af
því, að garðar eru við sjó og grafirnar komast niður fyrir