Prestafélagsritið - 01.01.1925, Qupperneq 98
Prestífélagsritið.
Kirkjugarðarnir.
93
Vírgirðingar utan um grafreiti eru ekki heppilegar. Þar sem
vírinn verður að vera sléttur leita skepnur mjög mikið á hann,
því að »haglendið« fyrir innan blasir við þeim. Þær troða sér
milli strengjanna og gera þá smám saman slaka eða skekkja
stólpana, og er þá girðingin ónýt. Vírgirðingar veita ekkert
skjól, einhver berangursbragur er á þeim grafreitum sem svo
eru girtir, og yfirleitt eru vírgirðingar ljótastar og hversdags-
legastar allra girðinga þótt góðar séu og praktískar til vörzlu
alment og þá auðvitað gaddavírsgirðingar, því að styrkur þeirra
er mestur í göddunum, sem verja þær hnjaski. Mikið bætir
úr ef lágir garðar eru hlaðnir undir vírinn eins og fyr er
getið, því að það breytir alveg svip girðingarinnar.
Þetta eru nú helztu afbrigðin. Auk þess er svo getið báru-
járnsgirðingar á tveim stöðum, tréstólpagirðingar með járn-
rörum og timburgirðingar ofan á torfgarði.
Lang-víðast, þar sem á annað borð er getið sáluhliðs, er
það úr timbri með trégrind, og getur það verið gott ef mál-
að er og haldið við, en víðast mun talsvert á það bresta. I
þó nokkrum stöðum, einkum sunnanlands, er getið járngrinda
á steyptum stólpum, og er það auðvitað miklu varanlegra.
Þarf þá helzt að vera steyptur bogi yfir vegna styrkleika eins
og í einstaka stað er, með krossi og helzt klukku, og er
hennar getið á þrem stöðum.
Sáluhliðið er helzta prýði garðsins og ætti að leggja miklu
meiri stund á að gera það vel úr garði en nú tíðkast. A
torfgarði eða steingarði mætti hlaða kampa og reisa tvær
sperrur og gera torfþak yfir með krossi á framburst og klukku
uppi undir mæni. Gæti það farið mjög vel og verið stór-
mikil prýði á garðinum og gert hann vistlegri og ræktarlegri
aðkomu.
Húsameistari Guðjón Samúelsson hefir gert mér þann greiða,
að draga upp þrennskonar sáluhlið, tvö fyrir steinsteypugarða
°9 eitt fyrir torfgarð. Má sjá af þessum uppdráttum, hve mikil
prýði getur orðið að smekklega gerðum sáluhliðum.
Þá þarf og að gæta þess, að sáluhlið standi vel við kirkju-
húsinu, ef kirkja er í garðinum. Má hugsa sér það á marga vegu.