Prestafélagsritið - 01.01.1925, Side 108
Prestafélagsritiö.
Markús og guðspjall hans.
103
mönnunum. Hann sér, hvernig þeir eru að eignast kraft, sem
ekkert muni fá staðist, líkt og Jesús sé ósýnilegur meðal
þeirra og gefi þeim þróttinn. Hann horfir á páskahátíðina
verða þeim að hvítasunnu, er þeir íklæðast anda og krafti frá
hæðum. Fyrsti kristni söfnuðurinn myndast, og heimili þeirra
mæðgina verður miðstöð hans. Þar koma menn saman, til
þess að styrkja hverir aðra í trúnni á Drottin ]esú, minnast
hans og brjóta brauðið.
V.
A þessum samkomum kvað langmest að einum manni, sem
venjulega hafði orð fyrir og gerðist þegar aðalleiðtoginn að
vilja ]esú. Hann hafði verið ]esú harla kær og elskað hann
aftur á móti af allri sinni sál. Hann hafði hrasað að vísu, en
ekki var það fyrir kærleiksskort. Hann hafði fylgt ]esú að
staðaldri frá því er hann kallaði hann til starfa með sér frá
netjunum við Genesaretvatnið — og nú séð hánn fyrstur
upprisinn. Það var Símon Pétur. Enginn gat sagt frá minn-
ingunum um ]esú eins og hann, áheyrendurnir horfðu í anda
á viðburðina gerast og undiraldan var alstaðar játningin mikla
um ]esú: »Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs«. Markús
laðaðist að honum meir og meir. Hann átti honum mest að
þakka allra manna. Andrúmsloftið nýja, sem hann lifði í, snerti
dýpstu hjartarætur hans, endurminningarnar um ]esú urðu
honum líf og hann sá það, sem lærisveinarnir sáu, og fagn-
aði með þeim deginum í austri. Hann varð kristinn. Síðan
kallaði Pétur hann son sinn. Og vináttan, sem tókst þar með
þeim fiskimanninum frá Kapernaum og ]erúsalemspiltinum,
hélst upp frá því og hefir orðið Markúsi bezti styrkurinn á
æskuárum hans og mótað hann mest. Andlega lífið í söfnuði
hans á næstu árum og áratugum var einnig framúrskarandi
heilbrigt og þróttmikið. Minningarnar um ]esú varðveitast líkt
og áður og vonirnar um endurkomu hans innan skamms lifa,
enda þótt fyrstu lærisveinarnir taki nú að hníga í valinn. Þeir
fara aðeins á undan til móts við hann, en hinir, sem eftir
standa, vilja fylgja þeim í anda og taka sér pálmaviðargreinar