Prestafélagsritið - 01.01.1925, Síða 126
Prestafélagsritið.
Tveir norrænir fundir.
121
Fyrsti fundurinn byrjaði kl. 4V2 síðdegis. Þar flutti einn
biskup frá hverju landi stutt erindi um hagi kirkjunnar í sínu
landi, á nálægum tíma. Fyrstur talaði dr. J. Gummerus frá
Finnlandi, því næst sá er þetta ritar, þá Hognestad frá Björg-
vin, þá dr. Danell frá Skörum í Svíþjóð og loks dr. Valdemar
Ammundsen frá Haderslev. Engum leyfðist að tala lengur en
hálfa stund og var fundarstjóri mjög eftirgangssamur um, að
þeirri reglu væri fylgt skilyrðislaust. Þegar að lokum hálfa
tímans leið, lét hann miskunnarlaust fundarstjóra-bjölluna gjalla^
Voru erindi þessi mjög fróðleg og það mjög vel tilfallið að
hefja fundina með þeim. Umræður urðu engar, enda átti
fundarsetu að vera lokið kl. 7. En þá var gengið til miðdegis-
verðar. Var sætaskipun við borðhald svo fyrirkomið, að eng-
inn gestanna fékk að sitja tvær máltíðir í sama sæti við
borðið. Var það gert til þess að undirstrika sem bezt, einnig
við þá athöfn, að hér væri enginn metorðamunur, heldur allir
jafningjar. En fyrir hvorum borðsenda sátu húsdrotnar, við
annan »systir« Alvilda Ræder, forstöðukona Diakonissustofn-
unarinnar í Höfn, og við hinn Erik Christensen prófastur svo
sem fulltrúi forstöðunefndar Vedbygaards-stofnunarinnar. Var
mjög vel veitt og borðhaldið hið ánægjulegasta. Sá sem þetta
ritar hafði áður (einkum haustið 1923 í Lundi) kynst flestum
þessum biskupum. Eg held, að þeir hafi aðeins verið 5 í
hópnum, sem ég þekti ekki áður en á fundinn kom. Eftir
máltíð var spjallað saman ýmist innan dyra, eða úti í garðin-
um kringum höllina. Hl. 93M var flutt stutt bænagerð og
sálmur sunginn, en að því búnu fór hver heim til sín.
Föstudag 5. sept. var í sóknarkirkjunni (Ruds-Vedby) haldin
bænagerð með biblíustund á eftir. Þar talaði John Ammund-
sen biskup á Lálandi og Falstri (bróðir biskupsins í Hader-
slev) og var stundin þar i hinni gömlu sveitakirkju hin upp-
byssilegasta. ]. Ammundsen er að vísu ekki lærdómsmaður á
við bróður sinn í Haderslev, sem tvímælalaust er lærðastur
allra danskra biskupa, sem nú er uppi, en hann er orðlagður
prédikari. Að lokinni þessari guðræknisstund í kirkjunni var
gengið til fundarsalar. Þar flutti erkibiskup dr. N. Söderblom