Prestafélagsritið - 01.01.1925, Side 142
Presuféiagsritm. Múhameð og íslam. 137
þeir trúna þegar heim kom til Vatreb, sem síðar var nefnd
borg spámannsins — Medinet-en-nabi. Munnmælin segja frá
einni opinberun Múhameðs, sem á að hafa gerst um þetta
leyti — næturferð hans gegnum himnana. Sumir beztu sagn-
ritarar Araba telja þó það, sem hér fer á eftir, helzt sem
sýn eða draumsjón spámannsins. Skal nú gefið ágrip af frá-
sögn Múhameðs. >Eg hafði lagt mig til svefns,« segir Múha-
með, >í dalverpi einu milli fjallanna Safa og Merva, þegar
Gabríel engill kom og vakti mig. Hann hafði með sér reið-
skjótann Elbórak, sem var silfurlitur og skjótari en elding,
svo að eigi mátti auga fylgja flugi hans. Gabríel bauð mér
að stíga á bak. Eg gerði svo. Því næst héldum við af stað.
Á næsta augnabliki vorum við komnir að borgarhliðum Jerú-
salem. Elbórak nam staðar. Eg steig af baki og gekk inn í
borgina. Þegar ég gekk inn í musterið, mætti ég Abraham,
Móse og Jesú! Ég baðst fyrir ásamt þeim. Þegar því var
lokið steig ég á bak. Við fórum með leifturhraða gegnum
feykilegt gímald. Loks námum við staðar við hinn fyrsta him-
in. Gabríel barði að dyrum. »Hver er þar?« var spurt inni
fyrir. »Gabríel«, svaraði engillinn. »Hver er förunautur þinn?«
»Múhameð«. »Hefir hann tekið við köllun sinni?« »Svo er
víst«, svaraði Gabríel. »Sé hann velkominn*. var svarað. Opn-
uðust þá dyrnar og gaf þá á að líta. »Sjá, hér er Adam for-
faðir þinn«, sagði Gabríel við mig, »heilsaðu honum«. Ég
heilsaði honum og tók hann kveðju minni. »Himininn«, sagði
hann, »uppfylli óskir þínar — sonur minn, þú ert mestur
meðal spámanna«. Við héldum þaðan. Ég fylgdi Gabríel og
fór gegnum fimbulgeim óravegu. Loks komum við til næsta
himins. Gabríel barði að dyrum. »Hver er þar?« var spurt
inni fyrir. »Gabríel«. »Hver er förunautur þinn?« »Múha-
með«. »Hefir hann tekið við köllun sinni?« »Svo er víst«,
svaraði engillinn. »Sé hann þá velkominn«, var svarað og
dyrnar opnuðust. Þar hitti ég Jesú og Jóhannes. Ég heilsaði
þeim og tóku þeir kveðju minni. »Heill sé þér«, sögðu þeir
við mig, »þú ert mestur allra spámanna«.
Þannig leið Múhameð gegnum öll svið himnanna sitjandi á