Prestafélagsritið - 01.01.1925, Page 143
138 Ragnar Ófeigsson: Prestaféiagsritio.
Elbórak og undir forustu Gabríels. Á 3. himni var hann hyltur
af Jósef, í 4. af Enok, í 5. af Aron, í 6. af Móse og í 7. af
Abraham, og tók við heillaóskum hvervetna. Frá 7. himni fór
hann enn gegnum mikinn geim og komst alt að takmörkum
Paradísar. Þangað er eigi heimilt að koma nema himneskum
verum. Lótostré mikið vex við inngang sælustaðarins. Það er svo
mikið, að einn ávöxtur nægir til að metta allar skepnur jarð-
arinnar daglangt. Frá rótum trésins renna 4 fljót, fegri öllum
sem á jörðu renna. Múhameð fór inn í Paradís og sá þar
óviðjafnanlega dýrð. Þaðan fór hann inn í »höll tilbeiðslunn-
ar«, en þangað leita pílagrímar frá öllum sviðum himnanna.
70000 engla tilbiðja þar hinn Eilífa, á hverjum degi. Þeir
hinir sömu koma eigi aftur — en nýr skari kemur með
hverjum nýjum degi. Þar gerði Múhameð bæn sína í muster-
inu, sem gert er af rauðum hyasintum og umhverfis það
brenna lampar óteljandi og loga þeir um aldur og æfi. Þá
voru borin fyrir Múhameð 3 ker — var vín í einu þeirra,
mjólk í öðru, hunang í hinu þriðja. Múhameð valdi mjólkurkerið
og þótti Gabríel viturlega ráðið. Enn fór Múhameð gegnum
fimbulgeima og mikið Ijóshaf, unz hann nálgaðist hásæti Guðs.
Guð bauð honum að gera bæn sína 50 sinnum á dag. Því
næst hélt Múhameð á fund Móse í 6. himni og sagði honum
skipun Guðs. »Hverf þú aftur til drottins*, sagði Móse »og
bið hann að draga úr hænatölunni, því að fólk þitt getur eigi
fullnægt þessu boðorði*. Múhameð sneri aftur upp til Guðs
og bað hann að draga úr kröfunni. Guð veitti honum áheyrn
og færði bænatöluna niður í 40. Múhameð sagði Móse, hvernig
Guð tók máli hans. Móse réði Múhameð að fara enn á fund
drottins og biðja um linun. Bænatalan var enn færð niður í
30, og fyrir fortölur Móse hélt Múhameð áfram að biðja
drottin um »afslátt«, og loksins ákvað Allah, að hver »trú-
aður« maður skyldi gera bæn sína 5 sinnum á dag. Múha-
með varð feginn málalokum — kvaddi trúarhöfund Gyðinga
og leið til jarðar. Elbórak skilaði honum aftur á sama stað
og hann hafði tekið hann upp fyrir nokkrum klukkustundum.
Opinberun þessi átti að réttlæta bænasið íslams. Lærðir