Prestafélagsritið - 01.01.1925, Blaðsíða 146
Prestaféiagarítiö. Múhameð og íslam. 141
ritninganna og taldi þá falsa orð Guðs. í öllum þessum
orðasennum þótti honum halla máli sínu og því tók hann að
beita þeim vopnum, er Gyðingar hlutu að glúpna fyrir. Hann
sigraði Gyðinga sem herforingi á vígvelli, en sem spámaður
fékk hann engu áorkað gagnvart þeim. Svo lauk þeirra við-
skiftum, að Múhameð hafði ýmist gereytt heilum ættflokkum
eða auðmýkt þá, sem eftir lifðu. Sem dæmi grimdar hans
má telja, að hann lét eitt sinn af lífi taka 700 fjölskyldufeður,
er voru á valdi hans, en selja mansali konur þeirra og börn.
Skömmu eftir að Múhameð kom til Medína, giftist hann dótt-
ur Abú-bekr, Ajeshu. Hún var þá barn að aldri, 9 vetra.
Gerði spámaðurinn það til að tryggja vináttu sína við hinn
gamla Abú-bekr. Bygði hann hús handa konu sinni við hlið-
ina á sínu eigin húsi og öllum konum sínum sá hann þannig
fyrir sérstökum bústað. En þær urðu loks eigi færri en 15.
Gerðist hann kvennhollur mjög og voru flestar konur hans
teknar í hernaði. Fóstursonur hans Zaid átti konu, einkar-
fagra, Zainab að nafni. Múhameð varð hrifinn af henni og
bæði Zaid og kona hans fengu grun um tilfinningar spá-
mannsins. Zaid var praktiskur, þ. e. hafði þau hyggindi sem
í hag komu. Hann skildi við konu sína og varð hún skömmu
síðar kona Múhameðs. Urðu dylgjur nokkrar útaf þessu
máli, því að samkvæmt sifjalögum Araba var manni óleyfi-
legt, að kvænast konu fóstursonar síns. En Múhameð fékk
opinberun og barg með því sóma sínum! Það er haft eftir
Múhameð, að hann hafi elskað mest konur og ilmvötn —
af þessa heims gæðum. Vfir höfuð er það furða hversu læri-
sveinar hans umbáru hann. Hið mikla vald, sem hann hafði
yfir félögum sínum, skýrist með því, að persóna hans hefir
verið glæsileg, eins og fyr segir, og viljaþrek hans óbilandi.
Og í framkomu var hann hverjum manni ástúðlegri, gagnvart
vinum sínum. Þegar hann dó 632 e. Kr. var Arabía nálega
öll á valdi hans. Helgisögnin skýrir þannig frá dauða hans:
Múhameð veiktist snögglega af hitasótt, er hann var hjá
Zainab konu sinni. Gyðingakona hafði byrlað honum eitur
fyrir nokkrum árum og var hann aldrei samur maður síðan.