Prestafélagsritið - 01.01.1925, Qupperneq 162
Prestafélagsritiö.
Erlendar bækur.
157
bendingar um andleg vandamál. Og þó að sumt hvað í þessari bók snú-
ist um sérstök kirkjuleg og kristileg vandamál Norðmanna, á hún þó
yfirleitt erindi til vor, því að „margt er líkt með skyldum", jafnvel fleira
en flesta varir. Höfundur er ákveðinn trúmaður, fastheldinn við allar
meginkenningar kristindómsins, en jafnframt víðsýnn maður og umburð-
arlyndur. Hann er auðsjáanlega einn af þeim mönnum, sem vilja ryðja
ásteyfingarsteinum úr götu bræðra sinna. Og þó að honum takist það
verk eigi alls staðar jafnvel að mínu áliti, er þó bók hans góðra gjalda
verð. Hún ber vott um góðan skilning höf. á því, að kristindómur er líf
og á að marka sín blessunarspor á öllum sviðum mannlífsins. Og hún er
riluð af góðum hug og mannást. I henni er fjöldi dæma úr reynslu höf.
og daglegu lífi til þess að varpa ljósi yfir viðfangsefnið sem rætt er.
Prestar og aðrir kristnir áhugamenn hefðu efalaust gaman og gagn af
mörgu í þessari bók. A. S.
Danskar bækur.
„Den historiske Jesus“, af Ditlev Nielsen, Underbibliotekar ved
Universitetsbiblioteket i Höbenhavn. — Med 92 Billeder. — Forlagt af
H. Aschehoug & Co. Köbenhavn 1925. — 216 bls. — Verð 8 kr. danskar.
Höfundur þessarar bókar er doktor í guðfræði, og hefir hann samið
bókina upp úr fyrirlestrum, sem hann hélt í háskólanum í Kaupmanna-
höfn árið 1923. Skiftir hann efni sínu í 14 kafla, er hann nefnir: Religion
og Kultur. — En ny Reformation. — Bibelreligion og Bibelkritik. —
Lyset fra Osten. — Fred paa Jord. — Jesus i Romerrigets Annaler. —
Jomfrufödslen. — Jesu Födsel. — Mureren Josef, Jesu Fader. — Jesu
Barndom. — Jesu Ungdom. — Jesu Religion. — Jesus som Samfunds-
reformator. — Jesu Personlighed.
Bókin hefir vakið mikla eftirtekt, — eins og ritgerðir norska guðfræði-
doktorsins Kristian Schjelderup um „Kristendommen, set i religionshisto-
risk Lys“, — og mikið verið um hana skrifað f Danmörku bæði í blöðum
og tímaritum. Er þetta næsta eðlilegt, því að bókin hefir bæði góða kosti
og mikla galla. Kostir hennar eru annars vegar, hve fjörlega og alþýð-
lega hún er skrifuð, og hins vegar hve margvíslegan sögulegan fróðleik
hún flytur og jafnframt leggur áherzlu á, að Jesús sjálfur sé kjarni
kristindómsins. Kveður þar við annan tón en í hinni alræmdu bók Georg
Brandesar: „Sagnet om Jesus“, er út kom á þessu ári. Enda lét dr. Ditlev
Nielsen ekki á sér standa að hrekja hinar fáránlegu fjarstæður Brandesar.
— En gallar bókarinnar eru þeir, að litið er um of á alt frá skynsemis-
trúarsjónarmiði einu. Verður bókin við það alt of neikvæð og ýmsar
fullyrðingar höfundar og niðurstöður æði varhugaverðar.