Ný kristileg smárit - 01.01.1896, Blaðsíða 16
13G
hlýtt á föður sinn, þar sem hann lá á knjám og bað
til Guðs fyrir ástvinum sínum meS hárri röddu. —
Þetta festi þó engar rætur hjá honum, og þegar
hann fór aS þroskast, ofurseldi hann sig gjálífi og
glaumi, eins og unglingum einatt hættir viS aS gjöra.
Hann stundaði nám sitt við háskólann í Halle, og
komst þar í hóp fjörugra og ljettúSarfullra fjelaga,
og meS þeim lenti hann í ýmsu sukki og slarki.
Einhvern dag talaSist þeim svo til, aS þeir
skyldu gjöra sjer glatt kvöld í frekara lagi, og var
víst svo til ætlazt, að þaS kvöld yrSi eigi mikiS um
þaS hugsaS, hvaS syndsamlegt væri og gagnstætt
lögmáli GuSs. Á meðan hann nú var að búa sig til
þessarar fyrirhuguSu svæsnu kvöldskemmtunar og
beið eptir fjelögum sínum, kom allt í einu jdir hann
skjálfti og titringur í öllum líkamanum, og hann
vissi eigi af fyrri en myndin af föSur hans, þar sem
hann lá á knjám og baSst fyrir, stóS honum svo
skyrt og lifandi fyrir hugskotssjónum, eins og það hefSi
verið daginn fyrir, að hann sá þetta og lieyrSi. —
Tschirner fyrirvarS sig nú fyrir gjálífi sitt, hafSi sig
út úr hinum hættulega fjelagsskap, og varS allur
armar maður upp frá þeirri stundu. Yarð hann síðar
einkartrúr þjónn Drottins og kostgæfinn verkamaður
ií víngarði hans.
Ný kristileg smárit eru eigi seld sjer í lagi, en fylgja
Kbl. ókeypis. Þó geta harnakennarar fengið þau til af-
nota við lestrarkennslu fyrir mjög vægt verð, hjá útg.
Kbl., ef niinnst 10 eintök eru tekin í einu.
Reykjavík. ísafoldar prentsmiðja 1890.