Syrpa - 01.12.1916, Síða 60
250
SYRPA, 4. HEFTI 1916
“The Anglo-Newfoundland Deve-
lopment Companv” hefir tekiö skóg-
lendi þetta til leigu í 99 ár, og er þá
taliS víst, at) eignirnar renni til rík-
isins aöyþeim tíma liönum. Félagiö
greiðir árlega tv'o doll. fyrir hverja
fermilu skógar, er það hefir til af-
nota.
Árið 1912 voru pappirsverksmiðj-
urnar stækkaðar að miklum mun og
framleiðislan auikin að sama skapi.
Setti félagið þá einnig upp fyrir-
myndarverkstæði til ])ess að gera við
og endurnýja vélar og áhöld er til-
heyrðu iðnstofnun þessari.
Atvinnumálin í Grand Falls eru í
hinu bezta ástandi. Meginþorri í-
búa Newfoundlands lifir af fiski-
veiðum og vanir við að vera “sínir
tigin herrar”, og verður þv'i skiljan-
legt, að töluverðan tíma hafi þurft
til þess að venja þá við nýtízkuiön-
að og verksmiðjulíf. Verkamenn
félagsins fá ekki minna kaup en tvo
dollara á dag og margir miklu hærra.
Húsaleiga er afar lág og félagið hef-
ir sínar eigin bújarðir og ræður
sjálft sölu á kjöti, smjöri, eggjum
og mjólk, og veitir síðan þessar af-
urðir vinnulýð sínum við mjög sann-
gjörnu verði.
Grand Falls liggur margar mílur
frá sjó og hefir félagið því orðið
að leggja járnbraut fyrir eigið fé
frá bænum og niður að Boatwood,
sem er aðal útskipunarhöfnin. En
]rar eru oft isþök svo mánuðum
skiftir og veldur það stundum all-
miklu tjóni. Þess v'egna hefir félag-
ið á seinustu árum verið að ráð-
gera að byggja nýja járnbraut til
suðurstrandarinnar, sem er íslaus
árið um kring.
Félagið hóf starf sitt árið 1905; og
fjórum árum seinna var fvrsti papp-
írsfarmurinn sendur til Englands til
afnota fyrir dagblöðin.
Alt til þessa dags hefir félagið
enga gróðahlutdeild greitt hluthöf-
um. En talað er um að áður en langt
um líður muni verksmiðjurnar verða
stórkostlegt gróðafyrirtæki.
" . --» .
Northciiffe lávarður og félag hans
á einnig gríðarstórar pappírsverk-
smiðjur við Tempsármynni, og eru
]rær kallaðar “The Imperial Paper
Mills.”. Þær verksmiðjur gefa ár-
lega af sér geysimikið fé.