Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 6
6
mikilli baráttu en sá tími tók og enda, og hann
kenndi mjer að Drottinn bæði frelsar og varðveitir
börn sín.“ Upp frá því hvarf friðurinn og gleð-
in aldrei úr hjarta hans, og þrátt fyrir alla erflð-
leikana, sem honum hafa mætt, hefur hann allt
af verið barn gleðinnar og ljóssins.
Nokkrum mánuðum seinna lokaði hann sig
inni i herbergi sínu og var lengi á bæn. Hann
bað Guð um að gefa sjer eitthvert starf, „hvað
erfitt og leiðinlegt, sem það væri,“ til þess að
hann gæti sýnt honum þakklæti sittt og kærleika.
Hann kvaðst aldrei fyr hafa verið eins gagntek-
inn af nálægð og kærleika Guðs og þá. Hann
var alveg viss um upp frá því að Guð ætlaði
honum eitthvert sjerstakt starf fyrir ríki sitt, þótt
honum yrði ekki þegar ljóst, hvað það væri.
Skömmu síðar las hann bók um Khxa, þar
sem meðal annars var minnst á, hvað þýðingar-
mikið væri, ef kristniboðarnir væru jafnframt lækn-
ar. Eptir það las H. Taylor allar bækur um
læknisfræði, sem hann náði í, og tveimur árum
seinna var hann kominn svo langt að hann varð
aðstoðarmaður hjá nafnkunnum lækni i Hull til
þess jafnframt að læra af honum.
Hann var þrjú ár í Hull og lærði þar mörg
læknisstörf, sem komu honum síðar að miklu
haldi. Hann kynntist þar og kjörum fátækling-
anna og þótti opt verst, hversu lítið hann gat
hjálpað. Launin hans voru-litil svo að hann halði
ekki roikju að iniðla, en þá sejdi hann húsgögn-