Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 31

Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 31
31 honum. Honum var komið árlangt á „siðaskóla,* þar sem hann lærði allskonar japanska „kurteisi." Faðir hans útvegaði honum lærðan kennara, sem kenndi honum kínversku og dálítið í hollenzku. Þegar hann var 15 ára, varð hann sainkvæmt iandssiðunum þjónn hjá „Daimióanum" sem var yflrmaður föður hans. Þar komst hann að því, að heiðnu prestarnir átu sjálfir fórnir þær, sem fluttar voru goðunum, og missti hann við það alla virðingu fyrir goðunum, en jafnframt leiddist honum svo iðjuleysið, orðbragðið og ósiðsemin, sem ríkti meðal samþjóna hans, að hann hálf- strauk úr vistinni og bakaði foreldrum sínum ó- náð höfðingjans um tíma. fá var honum kom- ið á sjómannaskóla, og þar kynntist hann ýms- um bókum, sem honum voru áður ókunnar. Lýsing af Ameriku á kinversku og Robinson Crusoe vöktu hjá honum óstöðvandi löngun til að „lít.a yflr fjöllin,* og sjá sig um í veröldinni. En einkum höfðu þó hollenzkar bibliusögur áhrif á hann. Hann las þær á nóttunni, því að allur lestur kristinna bóka var stranglega bannaður. Hann sagði seinna frá þeim áhrifum þannig: „Jeg hafði lesið um skaparann áður í holl- enzkum bókum, en jeg vissi þó lítið um hann fyr en jeg las þessar litlu biblíusögur. Jeg sá þá að hann hafði með ósýnilegri hendi skapað þennan sýnilega heim, en engin tilviljun. Jeg tók og eptir því að hann var opt kallaður i bók- inni „himneski faðir,“ og vakti það enn meiri

x

Vekjarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.