Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 25

Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 25
25 inn sjálfur hafi laðað hann til sín með samveru okkar, og að jeg muni mæta lionum á landi lifenda. Það verður fagnaðarfundur að mætast þar, þegar starfstími minn er á enda. Daginn eptir kom jeg heim. Jeg gat ekki þagað alveg um fögnuð minn yfir hjálp og varð- veizlu Drottins. Móðir mín fjekk bráðlega að vita það. Jeg þarf ekki að geta þess, að þegar jog sneri aptur tii höfuðborgarinnar, gat jeg ekki iifað eins spart og áður; jeg þurfti meira, og Drottinn sá um meira.“ — — Hudson Taylor iauk læknisnámi árið 1853, og varð fyrsti sendiboði Kínverska kristni- boðsfjelagsins. Vinir kristniboðsins hjeldu áhrifa- mikla skilnaðarsamkomu í Lundúnum til að kveðja hann, og svo fór móðir hans með honum til Liverpool; þar steig hann á skipsfjöl. Rjett áður en skipið ljetti akkerum, var haidin skilnaðar- guðsþjónusta á skipinu, sem hjet „Dunfries" og átti að faia til Kína. Svo fóru mæðginin niður í klefa hans til að kveðjast. Hudson Taylor lýs- ir þannig skilnaði þeirra: „Hún tók tíl í klefa mínum með kærleiksríkri móður hendi, og sett- ist svo hjá mjer. Við sungum sálm saman í hinnsta sinn á undan skilnaðinum langa, svo krupum við hvort við annars hlið, og hún bað. Það var síðasta móður-bænin, sem jeg heyrði áður en jeg fór. í sama bili bljes skipið til brott- farar, og við urðum að skilja, urðum að kveðj- ast með þeirri hugsun, að við sæumst aidrei

x

Vekjarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.