Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 43

Vekjarinn - 01.04.1904, Blaðsíða 43
43 koraast áfram hjer á landi, er að lialda djarf- lega áfram, hvað sem öllum erfiðloikum líður." Ári síðar (1876) stofnaði kona Nísímu (systir Jamamoto) kvennaskóla, og kenndi þar sjálf. Nísíma kom upp heimatrúboðsfjelagi og styrkti allt kristilegt starf. Hann var mjög ást- sæli af lærisveinum sínum, og hatði gott lag á, að láta þá hlýða sjer. Einhverju sinni höfðu orðið óspektir í skólanum, og kallaði þá Nísima alla skólapilta á fund og sýndi þeim fram á, að slíkt athæfi verðskuldaði þunga hegningu, en end- aði ræðu sína á þvi, að hann kvaðst skyidi sjálf- ur þola hegninguna í stað þeirra seku. Övo barði hann sjálfan sig með digru priki þangað til það brotnaði. — Piltarnir voru alveg utan við sig, og einn þeirra geymir brot úr prikinu enn í dag til endurminningar. — Lasleiki Nisímu ágerðist þegar fram liðu stundir, og gátu þá vinir hans í Ameríku með miklum erfiðismunum fengið hann til að hvílast frá störfum og ioita sjer heilsubótar, og fór hann þá 1883 til Ítalíu, og dvaldi um hríð í Alpadölun- um hjá Yaldensasöfnuði. Laðan fór hann til Sviss, og þá var það einu sinni, er hann var á gangi upp í fjalli, að honum varð allt 'i einu svo illt fyrir hjartanu að hann gat varia komizt til byggða. Það var enginn læknir við hendina, og Nísíma skrifaði með miklum erfiðismunum hvern- ig fara skyidi mtð lik sitt, ef hann dæi þarna, og undir það skrifaði hann: „Hver, sem les þetta, biðji fyrir Japan, hinu eiskaða föðurlandi mínu.“ Kraptarnir virtust alveg þrotnir, en svo gat hann sofnað, og það hressti hann svo að hann náði sjer eptir nokkurn tíma. Hann hefur Jýzt siðar liugarástandi sínu þannig, er hann virtist standa við opna grof sína fjarri öllum vinum i ókunnu

x

Vekjarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.