Vekjarinn - 01.04.1904, Qupperneq 29
29
vel stutt heiðna menn, þegar þeir settust um
Sjanbóra, skammt frá Nagasaki 1637, þar sein
10 þúsund vopnfærir kaþólskir Japanar höfðu
sezt að til að verjast á meðan unnt væri. Fall-
byssur Hollendinga brutu loks skörð í múrana,
og 37 þúsund kristnir menn voru liöggnir niður
miskunnarlaust. Hollendingar máttu samt ekki
verzla nema á einni höfn, Nagasaki, og ekki
senda þangað nema eitt skip á ári. Kínverjar
máttu og koma til Nagasald en engir aðrir út-
lendingar.
Japanska stjórnin ljet reisa stóran minnis-
varða yfir píslarvottana í Sjanbóra, og ietra á
hann þessa yfirlýsingu: „Svo lengi sem sóiin
skín má enginn kristinn maður koma ti) Japans.
Sömuleiðis sje það öllum kunnugt, að jafnvel
þótt konungurinn á Spáni eða Guð kristinna
manna (líklegast páfinn) eða hinn mikli Guð yflr
öllu, ætli sjer að brjóta þessa skipun, þá skal
hann verða hálshöggvinn."
Nú var Japan lokað yflr 200 ár, og myrk-
ur heiðninnar með ailskonar spillingu hvíldi yfir
landinu. En árið 1853 sigldu Bandaríkjamenn
fjórum stórum herskipum til Japans, og neyddu
Japana orustulaust til að leyfa sjer verzlun á
tveimur hafnarbæjum. Brátt komu hiuar stói-
þjóðirnar á eptir, og eptir 1860 mátti heita að
verzlunin í Japan væri öllum frjáls. En íorboð-
ð gegn kristindómnum stóð snmt óhaggað enn.
Undir eins og dyrnar opnuðust Komu kristniboð-