Vekjarinn - 01.01.1906, Page 38

Vekjarinn - 01.01.1906, Page 38
38 I | aðir«, En svo ósamkvæmir eru menn sjáli- J um sér, að ílestir þessara sömu manna telja það »huggun« að sama oflofið sé flutt, þegar vandamenn þeirra liggja í kistunum, ætlast þá til að presturinn segi alla þeirra ómerki- ' legu æfisögu, svo að úr lienni verði frægðar- saga, slái ættingjunum gullhamra og víkieitt- hvað að því, hvað Drottinn megi verða feginn að fá aðra eins sæmdarmenn í himnaríki. Einkennilegt er það, að margur maður- inn, sem annars þykist litlu trúa af staðhæf- ingum presta um andleg efni, vill fyrir hvern mun fá »sáluhjálpar-passa« fyrir sjálfan sig og ættmenn sína í líkræðunum. það ætti þó að vera öllum ljóst, sem annars eru með fullu viti, — hvaða trúarskoðanir sem þeir kunna að hafa, — að slíkur lík]’æðu-»passi« kemur að litlu liði við dyr himnaríkis, og að með því sálgæzluleysi, sem hér er alment, vita prestarnir oflast ekki nokkurn skapaðan hlut um eilífðar framtíð þeirra, sem þeir jarða, og alt skraf þeirra" um hana er þá ekki annað en staðlausar getgátur, sem enginn getur reitt sig * á, og enginn huggun er að nema fyrir lelingja þá, sem aldrei nenna að hugsa sjálfir. Það finnur enginn kristinn maður að því, þótt presturinn tali um sáluhjálpar von þeirra, sem,; hann þekti vel og var sannfærður um að höfðu þvegið skikkjur sínar í hlóði lambsins,

x

Vekjarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.