Verði ljós - 01.08.1902, Side 14
VERÐI LJÓS!
126
kringumstæðanum næeta eðlilegt og skiljanlegt, væri hitt þó ekki síður
æskilegt, og mundi vafalaust gjöra fundina enn ujipbyggilegri, að meira
tillit væri tekið til hinnar innri hliðar, en gjört hefir verið hingað til.
Það eru mörg atriði trúar vorrar, sem ekki væri síður ástæða til að
gjöra að umtalsefni á fuudum þessum, en þau málefni, sem til þessa
hafa verið látin sitja í fyrirrúmi. Vér prestaruir þurfum ekki síður en
aðrir að fá beint guðfræðilega eða trúfræðilega fyrirlestra á þessum
fuudum vorum, sjálfum oss til lærdóms og uppbyggingar, og það ætti
því fremur að geta orðið sem þeir menn eru nú til ineðal norðlenzkra
presta, sein hafa til að bera öll skilyrðin fyrir því að geta lej^st það
verk viðunanlega af hendi. Vildi ég mega biðja formann prestafélags-
ins að taka þessa beudingu til íhugunar eftirleiðis.
x+y.
„Kristilegs félags mvjra manna“ í lieyhjavík.
1. gr.
Kristilegt félag ungra manna í Reykjavík er bygt á grundvelli
hinnar íslenzku þjóðkirkju og er liður í alþjóðasambandi kristilegra fé-
laga ungra manua.
Biskupinn yfir íslaudi er verndari félagsins.
2. gr.
K. P. U. M. leitast við að saf'na saman unguin möuuum, sem trúa
á Jesúm Krist sem guð sinn og frelsara samkvæmt heilagri ritningu,
vilja vera lærisveinar hans í trú og líferui og starfa í sameiningu að
útbreiðslu ríkis Jians meðai ungra manna.
3. gr.
Félagið rekur sálusorg meðal ungra manna, leitast við að efla trú-
arlegt og siðferðilegt líf meðal þeirra og hlynua að andlegum og líkarn-
legum þroska þeirra.
4. gr.
Þessu takmarki sínu reynir K. F. U. M. að ná með vikulegum
fundahöldum, þar sem guðsorð er liaft um höud og fræðandi fyrirlestrar
fluttir, með því að veita tilsögn í ýmsum greinum þeim, er þess óska;
leggja á ráð með þeim og leiðbeina þeirn.
5- gt'-
a, Rétt til að ganga i félagið og gjörast reglulegur meðiimur þess,
hefir sérhver ungur maður, fullra 17 ára, sem tilheyrir hiuui evangelisk-
lútersku kirkju og vill ldýða lögum fólagsius og venjum. Reglulegur
meðlimur félagsins getur enginn verið lengur en til 40 ára aldur. Jafn-
framt heíir fólagið sórstaka deild fyrir unglinga í'rá 12 til 17 ára.