Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Page 5

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Page 5
HYPÁTIA 29 úlnlið honum en hinni hægri um belti hans, og lenti svo í ógurlegum stympingum, sem honum alls ekki féllu illa. Konurnar æptu upp, og báðu hermennina í öllum bænum að skilja þá, en þeir voru ekki á því. »Nei, umfram alt ekki. Peir eru hver öðr- um samboðnir og glíman er réttmæt. Dragðu að þér bífurnar, Iðar. annars detta þeir um þig. Rétt farið, Smiður, beittu ekki hnífnum. þeir rjúka fyrir borð, þegar minst varir. Og þarna eru þeir fallnir, og Smiður er undir.« Pað vár svo. Fílammon ætlaði fyrst að sn'ara af honum öxina. En alt í einu slepti hann tökunum, sleit sig lausan og settist aftur á sinn stað eins og ekkert hefði í skorizt. Pá urðu allir hissa. Hann skammaðist sín fyrir sjálfum sér fyrir blóðþorstann, sem hafði snöggvast hlaupið í hann, þegar hann sá óvin sinn liggja fyrir fótum sér. Áhorfendur skildu ekkert í því, að hann skyldi ekki nota sér það, þegar hann hafði ráð á því að kljúfa höfuð Smiðs, og þeir hefðu ekki getað bannað það æru sinnar vegna, þó að þeim hefði fallið það þungt. Þeir hefðu hefnt félaga síns með því að flá Fílammon lifandi, til þess að svala sorg sinni og friða sálu hins fallna. Smiður stóð með öxina í hendinni og lit- aðist um — líklega til þess að sjá, hvers menn væntu af honum. Svo reiddi hann öxina . . . Fílammon sat grafkyr og horfði beint framan í hann. Pá iitaðist hann um og sá að skipið rak undan straumi og enginn bærði hendi til þess að hamla því; lagði hann þá frá sér öxina, gekk til rúms síns og settist niður. »Ekki má oss sú skömm henda, að ekki sjáist blóð eftir slíka baráttu,« mælti einn þeirra félaga; »blóð verðum við að sjá, og betra er að það sé þitt blóð, hinn armi munkur, en göfugra manna« — og um leið flaug hann á Fílammon. Pað var eins og hann hefði talað fyrir allra þeirra huga. Blóð máttu þeir til að sjá; þeir réðust á hann margir sam- an og slengdu honum flötum, og ráðguðust um, hverjum dauða hann skyldi deyja. Fílammon var hinn rólegasti, ef annars er hægt að tala um rósemi í geðshræringabreyt- ingum þeim, er alt þetta vakti hjá honum. En rétt um leið og þeir vildu vega að hon- um, sást það á, að syndugar konur hafa líka hjarta í brjósti. Pelagía æpti upp og sagði: »Amalrekur, Amalrekur. Bjóð þeim að hætta! Eg get ekki vitað til þess.« »Hermennirnir eru frjálsir menn, hjartað mitt, og vita, hvað þeim er skylt. Hvaða þýð- ingu getur líf þessa dýrs haft fyrir þig?« Áður en hann var búinn að tala út, spratt Pelagía upp úr koddunum eins og stálfjöður og þaut inn í miðjan þenna hlæjandi varga- hóp. »Gefið honum líf — líf fyrir mína skuld.« Og í einu vetfangi svifti hún af sér silki- sjalinu og varpaði því yfir Fílammon — og þarna stóð hún há og hnarreist í glitslæðunni og mótaði fyrir öllum hinum fögru limum hennar í gegn um hana. »Hver sem hefur hug til, skal nú reyna að snerta hann undir þessu sjali,« kallaði hún upp. Gotarnir hörfuðu frá. Að vísu báru þeir ekki mikla virðingu fyrir Pelagíu. En nú var hún ekki vændiskonan úr Alexandríu — heldur aðeins kona. Og ribbaldarnir runnu til hinnar fyrri lotningar þjóðarinnar fyrir konunni — fyrir augum hennar, tindrandi af göfuglegri aumkun og viðbjóði og skelfingu — og þeir hörfuðu undan og fóru að tala saman í hálf- um hljóðum. Svo var að sjá fyrst, að vafi gæti á leikið, hvor hefði betur, hinn verri eða hinn betri; þá fann Pelagía þunga hönd lagða á öxl sína og leit við. Var það Úlfur Óviðarson. »Far þú aftur, fagra kona, en sveininn heimta eg í minn hlut, drengir. Gef mér hann, Smiður. Pér hefðuð gelað drepið hann, hefðuð þér viljað, en þér gerðuð það ekki. Eg á svein- inn og hann er röskur piltur. Hann hefur jarðvarpað hermanni í dag og vægt lífi hans. við skulum gera úr honum dugandi hermann.« »Heyrið orð mín, drengir,« hrópaði Smið- ur, »bleyðurnar taka fast og lina svo á takinu, af því að bleyðublóðið hitnar fljótt og kólnar

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.