Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Side 6

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Side 6
30 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. fljótt. Átök hetjunnar harðna, því lengur sem hún heldur takinu, af því að andi Óðins er’ yfir henni. Eg fann það, þegar píltur þessi tók fyrir kverkar mér, að hann er fullsterkur móti hverjum manni, og eg ætla að gera mann úr honum. En fyrst skulum við láta hann gera eitthvað til gagns. Fáið honum ár.« »Já,« svaraði Ulfur, -hann getur eins vel róið eins og látið róa undir sér, og ef við eigum að snúa aftur þarna ofan í Heljardíkið, þá er bezl að gera það strax.« Svo settust þeir undir árar. Fílammon fékk eina þeirra, og reri hann svo rösklega og höndulega, að þeir fóru að klappa honum á öxlina með mestu vinsemd, enda voru þeir góðlyndir menn og drengir góðir, þó að þeim væri tamast að fást við rán og manndráp. Peir sem ekki reru, gengu fram í stafn og fóru að dást að hræi því hinu mikla, sem lá þar, þreifa á því, stinga höfðinu á sér upp í kjaftinn á því, þreifa um tennur þess, pikka í húðina á því, og líkja því við alt sem þeir höfðu séð áður, líkt og ólíkt. Loksins varð Smið að orði — hann var fyndnastur þeirra allra: »Viti það Valhöll, þetta dýr er líkast stóru, bláu plómunum, sem við átum okkur til óbóta í herbúðunum í Ravennu, og fengum maga- verki af þeim.« FJÓRÐÍ KAPÍTULI. Mirjam. Einn morgun í sömu vikunni kom vildar- ambátt Hypatíu inn herbergið til hennar með talsverðu fáti. »Gyðingakerlingin, lafði,« sagði hún, »fordæðan, sem hefur svo oft horft á þig handan af múrnum síðustu dagana — hef- ur gert okkur fjarskahrædd í gærkvöldi, hún var að gægjast inn. Við sögðum öll, að ef ill augu væru til, þá hefði hún þau.« »Nú, hvað er um hana?« »Hún er niðri, lafði, og vill fá að tala við þig. Eg er reyndar ekkert hrædd við hana — eg hef verndárgripinn minn á mér. Eg vona að þú hafir þinn líka.« »Pegi þú, flón; hver sá, sem er jafnhand- genginn leyndardómum guðanna og eg er, getur boðið vondum öndum birginn og gert sér þá undirgefna. Heldur þú að ástvina Pallas Aþenu leggi sig niður við særingar og töfra- varnir? Láttu konuna koma.« Stúlkan hvarf aftur með hálfgerðum vand- ræðasvip, bæði af lotningu fyrir lafði sinni, og undrun yfir mikillæti hennar. Hún kom aftur með gömlu Mirjam, en gekk á eftir henni til þess að verða ekki fyrir skoffínsaugum henn- ar, ef verndargripurinn kynni að geta brugðizt. Mirjam kom inn, gekk fram fyrir hina mikil- látu mey og hneigði sig niður alt að gólfi, en slepti þó aldrei augunum af andliti Hypatíu. Hún var mögur og beinaber í andliti, var- irnar breiðar og skarpleitar, og alt andlitið einskonar blendingur af krafti og munaðarhyggju. En það sem Hypatía tók fyrst eftir og batt huga hennar áfram, voru þessi köldu, kol- svörtu, tindrandi augu, er sindruðu framundan þéttum, grásvörtum augnabrúnunum og svört- um lokkum, er voru gegnbrugðnir með gull- peningum. Hún gat ekki annað en horft á þessi augu. Hún gleymdi allri sinni heimspeki og reiddist við sjálfa sig, þegar hún varð þess vör, að kerling ætlaði sér að seiða hana með augnaráðinu. Eftir nokkra þögn tók Mirjam bréf úr barmi sínum, hneigði sig aftur og rétti henni það. »Frá hverjum er það?« sagði Hypatía. »Ef til vill segir bréfið það hinni fögru frú, hamingjusömu trú, nafnkunnu frú,« sagði kerling í smjaðrandi flírurómi. »Hvernig ætti gömul Gyðingakerling að vita út í leyndar- mál göfugra manna.« »Göfugra manna?« Hypatia leit á innsigl- ið. Rað hékk í silkibandi. Innsiglið átti Órest- es. Það var þá höndin hans! . . . Undarlegt af honum að velja svona sendiboða. Hún klappaði saman Iófunum, til að kalla á ambáttina. »Láttu konuna bíða í forherberg- inu,« sagði hún.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.