Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Qupperneq 21

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Qupperneq 21
ÞÆTTIR. 45 »Nei, þakka yður fyrir, ruí er eg aftur orð- inn góður, þakka fyrir vinsemd yðar.« Með þessum orðum rétti hann úr sér og hélt áfram í hægðum sínum heimleiðis. Busk fór í humátt á eftir honum, þar til að hann sá að hann hafði slysalaust náð heim að húsi sínu. Nóttina eftir þennan atburð lá veslings Jó- hanna andvaka og grátandi í rúmi sínu, úrvinda af sorg og kvíða. Hún hafði fengið að vita, hvað faðir hennar hafði afráðið um framtíð hennar. Og henni kom eigi til hugar að hún hefði rétt til, hvað þá heldur skyldu, að mót- mæla því, að beygja sig undir vilja hans. Auk þess mundi hana hafa brostið kjark og þrek til þess. Von sú sem fram að þessu hafði lifað og varpað Ijóma á tilveruna, þótt hún væri aðskilin frá þeim manni, er hún unni hugást- um, sú von, að einhverntíma mundi þó birta af degi og hamingjusól þeirra renna upp, var nú að yfirgefa hana, svo hún gat ekki eygt fram undan sér annað en koldimma, endalausa nótt, vonlausa og gleðisnauða. Þetta olli henni sárrar sorgar. Hún grét sáran yfir auðnuleysi sínu, og tárin flóðu án afláts og vættu koddan hennar. (Framh.) Pættir úr landnámabók jarðarinnar. 9. Ástralía. Astralía fanst síðust allra heimsálfanna. Hún er að mestu til tómar ejjar, sem liggja beggja megin miðjarðarbaugs í hafinu á milli Asíu að vestan og Ameríku að austan. Eyjar þessar eru ótölulega margar, en flestar eru litlar og kveð- ur lítið að þeim; sumar svo smáar, að þær eru óbygðar, og ef til vill kunna enn að vera til smáeyjar, sem eru ófundnar enn. Fáar ein- ar af eyjum þessum eru stórar; mest þeirra allra er Ástralía (áður Nýja-Holland), og því næst Tasmanía (Van Diemensland), sunnan við Astralíu, Nýja Guinea og Nýja Sjáland. Það ræður að líkindum, að enginn einn maður hef- ur fundið allan þennan eyjabálk, enda þótt það sé víst, að einstökum mönnum er mest að þakka hvað fundist hefur, og hafa þeir því hrundið landafræðisþekkingunni stórum fram á vissum tímabilum. Mageljan fann fyrstur manna Maríueyjar eða Ladrones og Filippseyjar skömmu síðar. Þar féll hann í bardaga við eyjarskeggja 27. apr. 1521. Skip Mageljans héldu samt á- fram, og komust loks heim til Spánar næsta ár, það er að segja eitt þeirra (sbr. Kvv. 5. ár. 212.). Sannaðist þá að fullu að jörðin er hnöttótt. Meðal eldri sjófarenda, sem síðar gerð- ust hnattumfarar, nægir að nefna Mendana, Núijts og Tasman á 16. og 17. öld; þeir fundu marg- ar eyjar og gáfu þeim nöfn, Leið svo langt fram á 18. öld, að lítið var átt við landaleitir; þá byrjuðu þeir aftur landaleitir og siglingar, Englendingar og Frakkar, en mest varð James Cook ágengt. Hann fann Ástralíu. Hann fór þrjár ferðir í kringum hnöttinn, og féll í hinni síðustu 1779 á Havaji. Hann fann bæði mesta fjölda nýrra eyja, og margar þær, er áður höfðu fundist, en voru týndar aftur, og jók mjög þekkingu á landafræði með nákvæmni sinni á mælingum hnatlstöðu. Annars vissu menn af Ásturalíu áður, og hennar er getið á gömlum kortum frá 16. öld, en heitir þá alt öðrum nöfnum. En enginn vissi nein deili á landinu.og voru það helzt Hollendingar, sem þangað komu. En landsbú- ar voru viltir mjög og illvígir; þorðu Hollend- ingar ekki að fara neitt inn í landið. James Cook rannsakaði landið fyrstur manna, sigldi meðfram allri austurströndinni 1770, og tók landið hátíðlega undir vald ensku krún- ar. Hann varð þess og fyrstur var, að landið var ey, þótt stór væri, og nefndi landið Ástra- líu (Suðurland eða meginlandið suðræna). Þeg- ar heim kom til Englands, lýsti hann svo fag- urlega landkostum þar eystra, að stjórninni leizt landið efnilegt til nýlendusetningar; tóku þeir að láta mæla strendur landsins, og var því ekki lokið fyrri en á 19. öld. Árið 1788 var Arthúr nokkur Phillip sendur þangað með skipakost mikinn og fólk, til þess að stofna

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.