Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Qupperneq 23
BÓKMENTIR.
47
pd, Sterling, og keyptu sér fyrir það landspildu
eina nálægt Melbourne skömmu fyrir gullfund-
inn. En eftir gullfundinn seldi hann spilduna
fyrir bæjarstæði fyrir 120,000 pd. Sterling
(2,160,000 kr.). Svipað var um fleiri.
Nú eru ýmsir hlutar Ástralíu þéttbýlt land
og afarauðugt, bæði fyrir gullnámið og sauð-
fjárræktina, og það er áreiðanlega víst að hún
og flákar af Suðurameríku, svo sem Argentína
og flatneskiurnar meðfram stóránum þar, verða
framtíðarlöndin, þegar menningin og manns-
höndin eru búin að fá hemil á þeim.
Eg hef nú sagt frá því í þáttum þessum
í stórum dráttum, hvernig menningarþjóðir
Norðurálfunnar hafa lagt undir sig löndin í
hinum heimsálfunum, o: leitað þau uppi og
fært sér þau í nyt, flutt þangað búferlum og
hagnýtt sér gæði þeirra. Petta eru ekki nema
aðalstrikin úr þessu stóra málverki af fram-
farasögu heimsins. Fátt eitt er tekið fram —
flestu er slept. En aðdáanlegt er það, að líta
yfir þessa sögu og gæta þess, hve miklu viti,
þreki og kröftum hefur verið varið til þess að
breiða menninguna út yfir jörðina. Oft hefur
það verið gert með grimd og óheyrilegum
rangindum. En oft líka á annan hátt. Eftir því
sem tímarnir líða fram, lagast og siðast mann-
kynið, og fer að haga sér eins og góðum
mönnum sæmir. Það er straumur sögunnar, að
það vonda smáþokar úr sæti, og mildi og
mannúð verður einkunnarmark menningarinnar.
J. J-
-——
Bókmentir.
Eitt af því sem hverri þjóð þykir mest um
vert, sem von er, er það að eiga góða lýsingu
lands síns og þjóðar, og góða sögu þjóðar
sinnar. Eg er ekki svo fróður, að eg viti það
vel, en eg hyggað eg^megi segja það fyrir satt,
að engin þjóð sé svo smá, að ekki eigi hún
fjölda rita, sem hafa hvorttveggja að umtals-
efni, bæði stór og smá. Við íslendingar höfum
orðið þar tilfinnanlega á eftir eins og í öðru,
en erum þó nú að komast á laggirnar með
það að nokkru leyti. Að vísu er saga lands vors
órituð enn. Bogi Melsted hefur komist ofan
að lokum sögualdarinnar með hina stóru sögu
sína, og því miður allar horfur á því, að þar
verði botninn sleginn í það mikla verk, þar eð
þingið hefur látið hafa sig til að taka af hon-
um styrkinn til að halda áfram. Pað má vel
vera, að saga hans sé ekki rituð með þeiri
snild, sem æskilegt væri. En eitt er víst, að
hún er rituð með svo mikilli vísindalegri sam-
vizkusemi, að betur verður ekki gert. Og það
er meira virði en öll glysmæli og gullinfamb,
það geta aðrir gert á eftir. En sorglegt er ef
hún kemst ekki að minstakosti fram yfir 1264,
að eg ekki segi fram um 1550. Þættir hans
eru ágætir það sem þeir ná, og vonlegt er að
að hann reyni þó að bæta þar við seinnipart-
inum, til þess að þolanlegt ágrip sögu vorrar
verði þó til. Að vísu hefur Sigurður kennari
Pórólfsson safnað allmiklu efni f »Minningum
feðra vorra«, en bæði er það rit ósögulegt að
sniði og öllu fyrirkoinulagi, og fremur að álíta
sem safn til sögu vorrar; en virðingarvert er
það rit og þakkarvert, því að enginn er sá
allsófróður í sögu vorri, sem kynnir sér það
vel; og eg lít aldrei svo í þá bók, að eg
renni ekki þakklátum huga til Sigurðar fyrir
hana, þrátt fyrir alt það, sem eg hef við bók-
ina að athuga. Uskandi og vonandi væri að
hann gæti endurbætt hana og látið prenta hana
að nýju.
Eftir þessu að dæma eru litlar horfur á
því að vér fáum fullkomið og gott ágrip sögu
vorrar fyrst um sinn —og er ilt. En vonandi
vaknar einhver til þess að ráða fram úr vand-
ræðum þessum áður en langt líður.
Alt öðru 'máli er að gegna með »lýsingu
Islands®. Lengi vel var engin lýsing landsins
til nema sú, sem var í Oddsens Landafræði, fyrri
parti, bls. 156 — 308. Sú lýsing var ágæt á
sinni tíð, en er orðin alveg úrelt sem von er
til. Svo gaf I3. Thoroddsen út stutta lýsingu
íslands 1881, og var hún endurprentuð með
myndum um 1900. En þetta voru aðeins stutt-
ar skólabækur og lítið verulegt við þær annað
en þær voru einkarvel ritaðar. Allir vita að
Þorv. Thoroddsen hefur ferðast um alt ísland
á 18 árum, og safnað bæði á þeim ferðum
pg úr öðrum ritum feykilega miklu efni um
ísland og alt það sem að íslenzkum efnum
lýtur, bæði fjær og nær. Nokkru af því hefur
hann safnað saman og gefið það út í »Land-