Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Side 5

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Side 5
HVERJUM ER UM AÐ KENNA 101 nú ekki; en hann er ísmeygilegur stjórnmála- maður, sem kann að haga sér eftir kröfum al- mennings kosningarréttar. Ráðherra, sem situr í skuldasúpunni upp í axlir, áður en hann kemst í tignina, og talar altaf um, hvað hann sé óeigingjarn þessi tvö ár, sem hann er við völdin og ber sér rösklega á brjóst og talar fagurt á ræðustólnum — en hefur samt nurlað saman tveim miljónum í embættinu og komið þeim til vara í enskan banka — hann er ekki þjófur. Síður en svo; hann er stjórnmálamað- ur, sem svarar öllum þeim rógi og lygi, sem á hann er ausið, með þegjandi fyrirlitningu. En sakamenn, sem ekki eru nema tíu vetra gamlir, sofa á nóttunni í hálfreistum húsum. reyna að hafa peninga út úr fólki, sem geng- ur um göturnar, og eru svo ósvífnir að helga sér eitthvað af vörum, sem haft er til sýnis úti fyrir búðum — þeir eru viðurstygð. Reir eru þeir einu, sem veruleg hætta stendur af fyrir þjóðfélagið. Hjálp, hjálp, löggæzlumenn! Til allrar hamingju hafa menn lögreglu, sem verndar oss, og lið í fjárlögunum, sem sam- þyktur er ár eftir ár, til þess að halda uppi refsingarstofnunum handa svona snemmþrosk- uðum glæpamönnum. IX. Og þjóðfélagið vaknaði. Einn morgun kl. fjögur hrukku þeir upp af fasta svefni f kjall- aranum, sem þeir höfðu valið sér til gistingar, við það að yfir þeim stóðu lögin í mynd lög- gæzlumanns í borgaralegum búningi, sem eng- inn okkar hefði kært sig um að verða fyrir í skógi eða úti á víðavangi, og með honum var vopnaður lögreglumaður, sem brennivínsstækju lagði af. Natóle og Chretien spruttu upp og ætluðu að leggja á flótta. En borgaraklæddi maðurinn með glæpamannsandlitið hremdi Natóle og sá vopnaði gómaði Chretien. »Sagði eg það ekki altaf, Laroze,« sagði sá borgaraklæddi við þann einkennisbúna, »sagði eg það ekki altaf, að við mundum rekazt hér eitthvað af þessum hundíngjalýð.* Og svo sneri hann sér að drengjunum og sagði: »Nú áfram með ykkur, skammirnar ykkar. A lög- reglustöðina — og flýtið ykkur nú.« Þangað komust þeir á fáeinum mínútum, og var stungið í svartholið í bráðina; það var loftlaus smuga, og stóð þar fata, sem megnan ódaun lagði af. Til allrar hamingju voru ekki aðrir en þeir. Par heyrði Chretien í fyrsta sinn á æfinni það ónotaurg, sem heyrist í fangels- isskrám. Hann hneig niður á tréskákina við vegginn og fór að gráta. En Natóle grét ekki; hann gekk um gólf eins og vitlaus maður, kross- lagði handleggina og bölvaði í hljóði. »Natóle,« sagði Chretien snöktandi, »hvað gera þeir við okkur?« »Já, það er satt,« svaraði Natóle, «þú þekk- ir enn ekki svartholið, grautardallinn, fangelsið, lögregluréttinn.* Chretien varð hræddur, er hann heyrði þessi ókunnu orð. »Hvað er það?« sagði hann með kvíða- hreim. »0 —þú færð bráðum að vita það ... Rað ér ekkert gaman, en ekki deyr maður af því.« »Og hvað gera þeir svo við okkur á eftir?« sagði Chretien enn hræddari, »Á eftir? Gera boð eftir foreldrum okkar og spyrja eftir, hvort þau vilji fá okkur heim. Faðir minn vill altaf fá mig heim ... En þú alstýrandi, hvað maður verður barinn oglaminn.* Rað fór hrollur um Chretien. Hann átt líka von á duglegri ráðningu. Og hann grét enn ákafara en áður. Kl. sjö urgaði aftur í lásnum, og leyni- lögreglan með þorparaandlitið — og innviðirnir voru ekki betri en hið ytra — birtist í dyrun- um. Hann skipaði fyrir í annað sinn: »Upp með ykkur, skammirnar ykkar;« og svo hratt þeim á undan sér inn í ritstofu lögregludómarans. Lögregludómarinn var ungur maður, óvenju- lega Ijótur með úfnum kömpum, stóru slipsi við skitna skyrtu, stuttu, snöggkliptu hári, sem virtist standa á endann inn í ennið á honum eins og meinsemd. Hann sat við dálítið borð

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.