Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Blaðsíða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Blaðsíða 13
HATTPRUÐA STULKAN. 109 »Nei, það vil eg ekki,« svaraði stúlkan örugg. »Eg er sterkari én þú, svo þú verður að láta undan.« »Eg veit það, en það er ekki drengilegt af stórum drengjum að ráðast á stúlkur.« »Eg vil ekki gera þér ilt en eiri því ilia að vera hafður hér í varðhaldi.« í aðra röndina skammaðist Tumi sín fyrir að ráðast á stúlkuna, en hinsvegar vildi hann eigi láta þvinga sig til að láta undan. Hefði Polly farið að gráta eða sýnt auðsæ hrygðar- merki, hefði hann ef til vill gefið eftir, en til allrar ógæfu gat hún ekki varist hlátri yfir því, hve hið gremjuþrungna andlit drengsins var mikil andstæða við búning hans. Hlátur stúlk- unnar reið baggamuninn. Hann þoldi eigi að stúlka tæki sér það vald, að loka sig inni eins og barn og hlægi síðan að sér þegar hann væri orðinn ráðalaus. Hann. réðist því umsvifalaust á stúlkuna. Hún reyndi að verja sig, en gat það eigi nema litla stund. Hann reif hendina sem hélt lyklin- um upp úr vasa hennar og sneri svo illyrmis- lega uppá úlnliðinn að hún misti aflið og lyk- illinn féll á gólfið. Stúlkan hljóðaði af sárs- aukanum. »Pað er þér að kenna, ef þú hefir meiðst,« sagði Tumi um leið og hann snaraðist út. Hann fór svo ofan en ekki inn í dagstofuna. Gletni hans lamaðist við það, að hann hafði grun um að hafa meitt Polly og hann lét sér nægja að sýna sig í eldhúsinu og lofa stúlk- unnm þar að hlægja að sér. Svo laumaðist hann upp aftur og einsetti sér að reyua aftur að sættast við Polly, en hún var þá komin inn á herbergi ömmu hans. Pangað leitaði hún jafnan í raunum sínum, jafnvel þótt gamla frú- in væri ekki heima. Tumi fór þá að tína utan af sér klæðnað systur sinnar og var um það bil að enda við að ganga frá honum þegar Fanny köm upp. Hún var alt annað en í góðu skapi, því Trix hafði sagt henni frá ýmsum skemtun- um, sem hún hefði orðið að vera án fyrir þetta tilfelli með blómvöndinn, sem hún kendi Polly. »Hvar er hún,« spurði Fanny, sem hafði löngun til þess að snupra vinstúlku sína. »Hún er líklega inni í sínu herbergi,« svar- aði Tumi, sem lézt vera sokkinn ofan í bóka- Iestur. } MeÖ2n þessu fór fram, hafði Maud, að vísu óviljandi, gefið tilefni til nýs andstreymis. Stúlk- an hafði yfirgefið hana til þess að sinna gest- um, og þá hafði hún farið inn f herbergi Pollyar. Par náði hún í kistil, sem Polly hafði áður lánað henni til að hafa fyrir skip, en nú var kistillinn ekki tómur, en Polly hafði gleymt að loka honum og þegar Maud opnaði hann til þess að stíga á skip, fann hún ýmislegt skrítið í kistlinum. Hún sat við að skoða það, þegar systir hennar kom inn og leit yfir öxl hennar. Fanny var svo reið við Polly að hún gleymdi alveg að finna að því við systur sína að hún var að rífa alt til í kistlinum hennar í óleyfi. í kistlinum voru ýmsir smámunir sem Polly hafði safnað saman eða búið til og ætlaði að gefa börnunum, þegar hún kæmi heim. Hún hafði hirt sumt af þvf leikfangi sem Maud var búin að fleygja, gert við það og ætlaði með það heim. Gömlum böndum og kniplingum, sem hún hafði fengið hjá Fanny, var hún búin að búa til brúðuföt úr. Smáum hlutum, sem Tumi hafði skorið út með hníf og gefið henni, hafði hún safnað saman til þess að sýna Villa hvað búa mætti til bara með vasahníf. »Pað er naumast samsafn,* sagði Fanny. »Hún er undarleg stúlka, er hún það ekki?« sagði Tumi, sem hafði elt Fanny til þess að vita hvort nokkuð gengi að Polly. Fanny fór að hlæja. »Pú ættir ekki að hlæja að þessum munum. Polly saumar betur brúðuföt en þú, og hún skrifar og býr til myndir mikið betur en Tumi,« sagði Maud. »Af hverju^veiztu það, eg hefi aldrei séð hana teikna,« sagði Tumi. »Hér er bók með mörgum myndum. Eg get eigi lesið það sem er skrifað í hana, en myndirnar eru mjög skrítnar,* og til þess að

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.