Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Page 18

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Page 18
114 NYJAR KVÖLDV0KUR. sólarhringa. Hungrið kvaldi þau, svo Bekka var nú orðin hálf meðvitundarlaus — hún óskaði þess aðeins að hún mætti nú deyja hér í næði! Tumi hugsaði með sér, að hann gæti svo sem reynt ennþá einu sinni að ransaka eínhver göngin með hjálp snúrunnar, ef ske kynni að hann hitti á rétta leið, eða rækist á einhvern leitarmanna. XXVIII. Nú var komið þriðjudagskvöld. Náttmyrkr- ið var að detta á og þorpsbúar voru daprir í bragði, því týndu börnin voru ófundin enn- þá. Flestir voru nú hættir leitinni og byrjaðir á hinum daglegu störfum sínum, því þeir þótt- ust vissir um að börnin mundu aldrei finnast. Frú Thatcher var fárveik og lá með óráði. Það var til þess tekið, hve átakanlegt það væri, er hún var að rísa upp við olnboga og kalla á barnið sitt og hlusta eftir svari og grúfa sig svo andvarpandi ofan í svæflana. Polly gamla var líka ákaflega sorgbitin og hár hennar því nær orðið mjallhvítt. Á þriðjudagskvöldið gengu þorpsbúar hljóðir til rekkju. En um miðnætur- skeið vöknuðu allir við það, að klukkum var hringt í ákafa og að örlitlum tíma liðnum úði og grúði á götunum af hálfklæddu fólki, sem hálfært af gleði, hrópaði sem einum munni: »Pau eru fundin! Komið út, þau eru fundin!* Menn börðu á blikkhlemma eða blésu í horn og streymdu hópum saman ofan með fljótinu, þangað, sem fundnu börnin komu akandi í vagni, sem dreginn var af fjölda fólks, er æpti hástöfum gleðióp. í einni svipan var vagm'nn umkringdur, og með ósegjanlegum gleðilátum og dynjandi fagnaðarhrópum færðist þessi sigurskari upp á aðalgötu þorpsins. Hvert einasta hús var skreytt á hátíðlegan hátt, og engum datt í hug að sofna dúr þessa gleði- nótt. Petta var óefað sú langhátíðlegasta nótt er þorpsbúar höfðu lifað! I hálfa klukkustund var óslitinn fólksstraumur út og inn um dyrn- ar á húsi Thatchers dómara, og menn ætluðu alveg að ofbjóða börnunum með kossum og spurningum. Menn þrýstu hendi hinnar fölu og máttvana móður og reyndu að kreista upp einhver vel valin orð, til að lýsa gleða sinni og hluttekningu, en menn komu ekki upp orð- unum og ruku svo á dyr með gleðitárin í augunum. Nú var gleði Pollyar gömlu fullkomin og það vantaði ekki mikið á, að slíkt hið sama mætti segja um frú Thatcher. Pað var aðeins eftir að ná í mann hennar og færa honum gleðitíðindin, því hann hélt ennþá ótrauður á- fram leitinni í hellinum; var strax sendur skyndi- boði til að hafa upp á honum. Tumi lá á legubekk og þyrptust menn utan um hann, til að hlusta á hið undraverða æfintýri frá hellis- vistinni, er endaði loks með lýsingunni á því, hvernig hann hafði loks yfirgefið Bekku og far- ið að kanna göngin á nýjan leik með hjálp snúrunnar. Pannig hafði hann árangurslaust kannað tvö göng, meðan snúran leyfði. Pá hafði hann lagt á stað inn í þriðju göngin. Er hann var kominn snúruna á enda, og ætl- aði einmitt að fara að snúa við aftur svo bú- inn, gætti hann alt í einu að einhverri glætu í myrkrinu, ekki allfjarri. Svo hafði hann fálm- að sig þangað snúrulaust og fundicj gat á berginu þar sem hann sá glætuna. Svo hafði hann þrengt þar í gegn höfði og herðum, og séð hið breiða Missisippifljót velta þar fram hjá. Hefði nú verið nótt, er Tumi var að kanna göng þessi, mundi hann ekki hafa eygt hina fjarlægu dagsbirtu og líklega aldrei farið oftar inn í göng þessi. Hann skýrði ennfremur frá því, hvernig hann hafði skreiðst aftur til Bekku, og hve sér hefði veitt erfitt að fá hana til að trúa þess- um gleðitíðindum, og hve hún hefði orðið gagntekin af fögnuði, er hún eygði hina fjar- lægu dagsbirtu. Svo hafði hann hjálpað henni útum gatið og hún hafði grátið af gleði, er hún var komin út. Skömmu síðar hafði bátur róið þar framhjá, og Tumi hafði kallað til þeirra er á honum voru og beðið þá að taka þau. Peir ætluðu ekki að trúa þeim, er þau voru að segja þeim af hellisvistinni, því þeir sögðu, að gatið, sem þau hefðu komið útum,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.