Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Side 2

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Side 2
122 NYJAR KVÖLDVÖKUR »Hvað ætli strákurinn vilji hingað?« spurði hann og horfði hvast framan í hana. »Pað hef eg ekki hugmynd um,« , sagði hún rólega. Gabríel gekk beint til marskálksins og rétti honum niðurlútur hringinn, sem hann hafði tapað. »Er ekki nóg af diskum þarna?« sagði mar- skálkurinn illhryssingslega og sló á hönd drengs- ins. »Ertu ekki búinn að læra hvernig þú átt að rétta hluti? Hvar fanstu hringinn?« »Hann lá við girðinguna — eg þekti hanri undireins — eg hef ætíð haft ánægju af að horfa á hann á hönd yðar,« sagði drengurinn hálfóttasleginn, af því hann hafði fengið eig- andanum hringinn strax. »Mjög ánægjulegt fyrir mig,« sagði mar- skálkurinn háðslega og dró hringinn á hönd sér. »Shön, gefðu honum köku og spurðu hann, hvað hann sé að gera hingað.« Frú Shön þreifaði ofan í vasa sinn og dró upp lykil, sem hún rétti Gabríel. »Rú hefur víst ætlað að fá lykilinn?« og jjar eð Gabríel játaði því, hélt hún áfram: »Sjúklinginn þyrstir, og eg hef læst niður hind- berjavökvann.« »Fyrirs!áttur — það er nóg af þjónustu- fólki hér á þönum, sem hægt hefði verið að senda, en það er alt of mikið dekrað við strák- inn, svo hann ímyndar sér, nð hann megi taka þált í öllu, sem gerist í höllinni — og láía þetta koma fyrir í dag; hefur ekki presturinn bannað honum, svo þér hafið heyrt, að taka þátt í nokkurri skemtun? Hafið þér gleymt því, frú Shön? Hann þarf að búa sig undir,« sagði hann og sneri sér að hertogafrúnni. »Við ákváð- um í morgun, að hann skyldi að þrem vikum liðnum, fara í undirbúningsskólann, — það er orðið meira en mál.« Hertogafrúin horfði á drenginn gegnum nefklemmurnar. »Pér hafið ákveðið, að hann skuli vera trú- boði?« spurði hún hirðprestinn. »Að mínu áliti er hann alls ekki vel fallinn til þess.« Pessi orð flugu eins og raturmagnsstraum- ur gegnuiri Líönu. I fyrsta sinn heyrði hún haldið fram annari skoðun en marskálkurinn hafði í áheyrn hans, og það auk þess af mann- eskju, sem með fám orðum gat breytt lífsá- kvörðun manna. Unga konan tók á öllu því hugrekki, sem hún átti til — það hlaut að vera konuhjarta, sem hún bar mál sitt undir. »F*að er þegarfarið að brydda á listamanns- eðli í Gabríel, yðar hátign, listamarinsins göfuga eðli,« sagði hún og horfði á hertogafrúna. »An minstu tilsagnar hefur hann lært að nota blýantinn af svo mikilli list, að mig furðar á. Eg hef fundið á borðinu hjá Leó myndir eftir hann, sem mundu nægja til þess að hann stæð- ist inntökupróf við hvaða málaraskóla sem er, og það jafnvel sem frínemi. Yðar hátign hef- ur rétt fyrir sér í því, að hann er ekki vel fall- inn til að verða kristniboði, það væri harðýðgi gegn drengnum sjálfum og ranglátt listarinnar vegna að neyða hann tii þess.« Hertogafrúin horfði á hana sýnilega forviða og svaraði fálega: »Rér hafið algerlega misskilið mig frú Mai- nan. Eg átti við, hve drengurinn væri veiklu- legur í útliti, og hve hann er að öl'uleyti ó- bermilegur, en ekki hans andlegu hæfileika, eða löngun hans og ást til starfsins — þar segi eg ákveðið: Hann verður að vera hæfur til þess. Óstýrilátir karlmenn geta gert uppreist gegn hinni helgu klerkastétt, og farið sinna ferða eftir þeim ályktunum, sem þeir gera, og þó eru oftast nær bygðar á röngum grundvelli. En við konurnar eigum þrátt fyrir það að standa sem einn maður gegn þessum skýjaglópum og halda okkur fast við hina einu sáluhjálplegu trú, með því að trúa og treysta því, sem okkur er kent, og láta ekki tæla okkur út í að brjóta heilann um það, sem við ekki skiljum.« »Rað er að gera hlutverk konunnar alt of auðvelt, yðar hátign; það er það sama og opna allar gættir fyrir trúnni á dularfullan andaheim, fullan af draugum, trúnní á djöfulinn og vald hans, sem konurnareru svo meðtækilegar fyrir.« Menn fóru að ræskja sig vandræðalega og ókyrrast á stólunum, en unga konan, sem hafði

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.