Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Side 5

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Side 5
LIANA 125 unum opin og vera athvarf þeirra, ef þeim Iægi á. Ó, hann Magnús! Það komu tár fram 1 augun á henni, er hún hugsaði til þess að sjá hann. Dýrhundarnir þutu í þessu geltandi út úr veiðimannshúsinu að baki hennar; hún leit um oxl sér og sá Mainan koma á eftir sér; hann var að sefa hundana, sem vildu flaðra upp um hann af gleði. Hún hélt áfram hröðum skref- um, eins og hún hefði ekki séð hann, en alt 1 einu var hann kominn samhliða henni. »Hvað, eru þetta tár, Júlíana? — gelur þú grátið?» spurði hann með kaldranalegri ánægju °g horfði framan í hana Ieiftrandi augum. »Ó, Þú þarft ekkert að flýta þér,« bætti hann við, er hann sá að hún strauk vasaklútnum hvat- skeytislega um augun og vildi komast á undan honum. »Enginn veit betur en eg, að þessi tár koma alls ekki frá bljúgu hjarta; en það er hsegt að úthella tárum af bræði og af særðri hégómagirnd . . . « »Og einlægum iðrunartárum,« tók hún fram 1 fyrir honum. »Ha ha, iðrastu þeirrar hreysti, er þú sýnd- ’r áðan? F*að var slæmt, — eg hef staðið í þeirri meiningu, að alt, sem þú sagðir þá væri obifanleg sannfæring þín. Eg hef álitið, að ef *'l þess kæmi, værir þú reiðubúin að deyja e'ns og píslarvottur fyrir hvert orð, sem þú talaðir. — Svo þig iðrar? Á eg að senda þér h'rðprestinn? Það er ekki hægt að hugsa sér betri skriftaföður — það sagði Valería mér.« »Eg ætti held eg að láta hann koma,« svar- aði hún í sama tón, »svo hann gæti uppfrætt mig í drauga og galdratrú, svo að eg .. . . « Hún roðnaði alt í einu og þagnaði um leið °g hún bandaði honum að fara frá sér. »Svo að þú gætir orðið ástar aðnjótandi, ems og eg sagði áðan,« sagði hann til að 'júka við það, sem hún ætlaði að segja. »Ekki hér! Ekki hérl« sagði hún með ákafa °g benti til hallarinnar, og svo bætti hún við rólegri: »Eg iðrast eftir því, að eg með fljót- ferni minni hef orðið til þess, að flýta fyrir Þvíj að Oabriel' verði settur f klauslrið — en eg er reiðubúin að endurtaka alt annað, sem eg hefi sagt, orð fyrir orð . . . « Mig iðrar þess ennfremur . . . . « »Lofaðu mér heldur að segja það, Júlíana — eg vil þó síður láta segja mér það af konu,« tók hann fram í fyrir henni alt í einu alvarleg- ur á svip. »Pú iðrast þess ennfremur, að þú af fáfræði, blindni og barnslegu sakleysi lézt tælast til að ganga í þetta hjónaband og skell- ir nú allri skuldinni á mig, sem hafði reynsl- una að styðjast við, og vissi hvað hann var að gera, og hvers hann krafðist.« »Já, já!« Og ef hann iðraðist lika?« »Er það þinn vilji Mainan? — Ætlarðu að lofa mér að fara? Og það þegar í dag?« spurði hún og hélt niðri í sér andanum, en augu henn- ar ljómuðu af fögnuði, og hún þrýsti höndun- um að brjóstinu eins og hún væri að biðjast fyrir. »Eg meinti það ekki, Júlfana,* svaraði hann alveg ruglaður yfir þessum fögnuði, sem hún átti svo erfitt með að halda í skefjum. »Pú hefur misskilið mig,« hélt hann áfram og það kom skrítilegur kipringur á efrivörina. »Petta er nóg í bráðina; á þéssum stað og þessum tíma verður ekki hægt fyrir okkur að koma okkur saman.« »Koma okkur saman,« endurtók hún hljóm- lausri rödd og lét handleggina síga niður með hliðunum. »Pað getur aldrei orðið. Og því þá að fresta því sem fram á að koma? . . . Guð minn góður, eg hef ekki einu sinni lengur þann vilja og þann fasta ásetning, sem eg byrjaði þessa nýju lífsstöðu með. Og hugsa sér sam- komulag á þeim grundvelli!« Hún hló biturt. »Fyrir mánuði síðan leitaðist eg við að ná sam- komulagi af eigin hvötum, með þeirri einlægu ósk að uppfylla þær skyldur, sem eg hafði tek- ið mér á herðar með svo ófyrirgefanlegri létt- úð; en eftir alt sem gerst hefur í dag, get eg það ekki, eg vísa því algerlega frá mér.« »En eg geri það ekki, Júlíana,« sagði hann æstur og æðarnar þrútnuðu á enni hans. Hún stóð sem snöggvast sem steini lostin

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.