Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 12
132 NYJAR KVÖLDVÖKUR á svip, og bölvaði mér upp á að indverska konan og barn hennar væri mér þyrnir í aug- um. Og þannig stóð á því, að eg var látin halda Gabríel litla undir skírn, og að eg var valin til að stunda sjúklinginn. Er eg ekki góð leikkona, náðuga frú? Rað er svo fjarska eðli- legt, þegar eg ræðst á Gabríel yfir f höllinni og rek hann með skömmum út í horn, og þó er hann uppáhaldið mitt og augasteinninn minn, eg gæti látið hjartablóð mitt fyrir hann. Eg hef alið hann upp frá því hann var ungbarn og úthelt mörgum tárum yfir þessum vesaling, sem ætíð horfði á mig með þolinmæði, jafn- vel þegar eg var sem allra verst við hann!« Orðin köfnuðu í hálsinum á henni og hún grét biturt. »Og hann ér þó af ætt þeirra,« hélt hún áfram, þegar hún var orðin rólegri. »Hann er þó einn af Mainanunum svo sannarlega sem 2 og 2 eru 4, og þó húsbóndinn sálaði þyrði aldrei að láta sýna sér hann, er og verður hann ætíð sonur hans samt.« »Það hefðuð þér átt að segja Mainan unga, þegar hann tók við arfinum,« sagði Líana. »Unga Mainan, náðuga frú? Það er þó ó- mögulegt, að þér talið í alvöru. Eg, sem er eins og fest upp á þráð, ef hann sér Gabríel tilsýndar — ó, það læsir sig um alla það augn- aráð! Hann veit líka vel hvers vegna hún hljóð- ar ætíð upp, þegar hertogafrúin fer fram hjá...« hún þagnaði alt í einu. »Hvers vegna gerir hún það?« spurði Líana með eftirvæntingu. »Hum, já, ungi barón'inn er svo líkur hús- bóndanum sálaða, að þar er enginn munurá.« svaraði frú Shön og leit í kringum sig vandræða- lega. Það mætti nærri því Ieg»ja eið út á að það væri húsbóndinn sálaði, ef aldursmunurinn væri ekki. Hann fór einu sinni hér fram hjá húsinu og leiddi þá hertogafrúna við hönd sér« — gamla konan leit í kringum sig flóttalega svo hélt hún áfram: »Og hún horfir ætíð á hann alveg eins og hún ætli að kveikja í hon- um; síðan hefur sjúklingurinn ætíð verið óró- legur, þegar hún hefur komið hér nálægt. Rað sýnir þó hve heilt hún hefur unnað manninum sínum sálaða; en baróninn er bara vanur að segja: »Hún er ekki með öllum mjalla,« og svo er ekki meira um það. Nei, hann mun naumast fara að skifta sér af því; og svo fram- arlega, sem drottinn tekur ekki í taumana, verð- ur vesalings drengurinn að fara í klaustur að þrem vikum liðnum — og svo á hann að fara til heiðingjanna, þá verður hann ekki lengur á vegi þeirra.« »En það er þó aðeins farið eftir óskum hins látna í þessu efni?< sagði Líana eins og spyrjandi. Frú Shön leit aftur á hana með löngu spyrj- andi augnaráði, svo svaraði hún. »Já, það segir það fólkið yfir í höllinni, en hver getur trúað því. Hafið þér lesið þennan merkilega miða?« »Nei.« »Pví trúi eg vel, hver veit hvernig hann ítur út! Á eg að segja yður, náðuga frú; kvöld- ið, sem þér komuð inn í indverska húsið og voruð svo vingjarnlegar við Gabríel, þá lofaði eg guð með sjálfri mér og hugsaði á þessa leið: Loksins sendir drottinn okkur einn af englum sínum. Rér urðuð okkur líka sannnefnd- ur engill, það sá eg áðan, þegar þér með svo mikilli djörfung tókuð svari drengsins gegn öllu þessu hræðilega fólki; en þér verðið aldrei látn- ar ráða neinu hér í höllinni. Gamli þrjótur- inn mun grafa grunninn undan fótum yðar eins og moldvarpa, og hinn, sem hefur flutt yður til Schönwerth — reiðist mér ekki, því eg verð að segja það — hann mun ekki vernda yður, það vitum við og sjáum öll. Regar hann get- ur ekki þolað gamla manninn lengur, mun hann hrista af sér rykið, krossa sig þrisvar og fara eitthvað lengst út í heiminn; það sem hann skilur eftir heima er honum sama um, og ungu konuna líka.« Líana varð eldrauð; frú Shön hafði með sinni látlausu og ófegruðu ræðu sýnt henni ineð skýrum dráttum hvernig staða hennar var í hús- inu, hve hún var völt og stóð á veikum fótum. Hún vildi þó ekki láta finna á sér, hve hún

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.