Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 18
138 NYJAR KVÖLDVÖKUR. ’ Hún þagnaði og hann slepti hurðarhand- fanginu. »Jæja, eg skal uppfylla þessa síðustu ósk þína áður en þú ferð héðan, ertu þá ánægð?« sagði hann eftir nokkra umhugsun. »Eg þakka þér hjartanlega fyrir,« sagði hún innilega og rétti honum hendina. »Nei; mér þykir ekkert varið í þetta handa- band; við erum hætt að vera góðir félagar,* sagði hann og sneri sér frá henni. »Annars finst mér þú ekki vera sérlega þakklát. Hirð- presturinn, vinur þinn, brýtur sig með takmarka- lausri sjálfsafneitun í mola fyrir þig, hvar sem hann kemur því við, og þú launar honum með því að beita hann brögðum.* »Hann veit bezt sjálfur, að eg æski ekki eftir þessari riddaralegu þjónustu af honum,* svaraði hún rólega. »Eg ætla mér samt ekki að láta umvendast á þennan óbeina hátt.« »Umvendaast,« tók Mainan upp og hló hátt. »Horfðu í augun á mér Júlíana,« hann greip vinstri hönd hennar og þrýsti henni fast. »Held- urðu þetta í raun og veru, að hann ætli að snúa þér til katólskrar trúar? Eg vil vita sann- leikann! Júlíana, vertu hreinskilin. Ef hann hef- ur nokkurn tíma dirfst að snerta þig eða svo mikið sem anda á þig . . . . « »Hvað gengur að þér maður,« sagði hún reiðulega og kipti hendinni að sér. »Eg skil þig ekki. Mér dettur ekki í hug að leyna þig neinu, sem sagt hefur verið í húsi þínu og á þinni landareign, þegar þú spyrð mig um það: Hann sagði að Schönwerth væri varasamur staður fyrir ungar stúlkur, hvort sem þær væru indverskar eða þýskar greifadætur. Ennfremur reyndi hann að búa mig undir mæðustundir, sem ekki væri hægt að komast hjá.« »ÁgætIega byrjað! Rað verður hann að eiga. Rví sjáðu til, Júlíana, Valería var allra bezta skriftabarn, og hann hefur rétt fyrir sér í þvi að æskja, að nýja húsmóðirin í Schönwerth feti í hennar fótspor, af tilliti til trúareiningar- innar á heimilinu; það er meiningin. Heldurðu það ekki?« »t*að hugsa eg, eða réttara sagt, eg efast alls ekki um það,« sagði hún og horfði stóru augunum sínum fast og hreinskilnislega framan í hann. sRess vegna neita eg ætíð ákveðið af- skiftum hans, eins og eg hef þegar sagt þér.« »Rú mátt ekki láta bifast í þeirri ákvörðun; eg vildi eg væri ekki búinn að horfa eins langt niður í hyldýpi viðurstyggðarinnar í mann- félaginu* — hann beygði andlitið fast niður að andliti hennar — »þá mundi eg geta svar- ið við þetta letur i augum þér eins og biblí- una; en,« hann hló biturt, »eg mun finna nóg ráð til að gæta þess sem mitt er fyrir þessum iðrunarprédikara.* »Hvað á þetta að þýða eiginlega?« tók unga konan fram í fyrir honum. »Þú ferð burt og eg . . . . « Eg fer nú að halda að þú sért búin að stagast nógu oft á þessu,« hrópaði hann reið- ur og stappaði í gólfið með fætinum............. Eg vona að þú verðir þó svo náðug að játa, að það er aðeins í mínu valdi hvort eg fer burt og hvert eg fer.« Hún þagnaði — það var ómögulegt að gizka á, hvað þessum einkennilega manni gat hug- kvæmst. »Játaðu bara, Júlíana, að þessi ástúðlegi, ráðvandi og lausmálgi maður hafi, þegar hann var að búa þig undir mæðusamar stundir, ekki hlift mannorði mínu heldur.« »Það verður þá að gera ráð fyrir, að eg hafi viljað hlýða á það með stillingu,« sagði hún eins og henni fyndist sér misboðið. »Þú álítur mig þó vonandi nógu skyldurækna til þess að líða engum að álasa þér í mín eyru, jafnvel þó eg viðurkendi með sjálfri mér, að hann hefði rétt fyrir sér. Hver sem dirfist að segja konu eitthvað ilt um mann hennar, hlýtur að hafa megna fyrirlitningu á henni.« »Þetta illa álit, sem þú hefur á mér, er þá eingöngu bygt á þínum eigin athugunum?« Hún sneri sér þegjandi frá horium. »Hvað? það eru þá aðrir, setn hafa talað um mig í þinni áheyrn?— Föðurbróðir minn?« »Já, Mainan... Hann var nýlega að kvarta yfir því við hirðprestinn, að honum væri illa

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.