Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Qupperneq 19

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Qupperneq 19
LIANA 139 við þessi sífeldu ferðalög þín, vegna Leós. Reyndar væru óðul þín reglulegar gullnámur- en ótrúir þjónar rændu þau og rupluðu engu síður en þú sjálfur. Óreglan og óstjórnin þar væri meira en svo að hægt væri að koma nokkr- ura orðum að því — honum óaði við í hvert skifti, sem hann frétti eitthvað af því.« Mainan hafði snúið við henni bakinu fölur ásýndum og horfði út um gluggann. »0 sussu, sussu — þú þekkir þó föður- bróður minn, hvað hann tekur nærri sér, ef hann heldur að eignirnar kunni einhverja vitund að skerðast; hann ýkir hroðalega, gamli maðurinn,* sagði Mainan án þess að snúa sér að henni... sÞú mátt vera viss um, að eftir fáar vikur verður alt komið í lag og gengur þá eins og í sögu — og hvað svo? Segðu mér nú, vizku- gyðja, hvað á eg að gera mér til dægrastytt- ingar hér á Schönwerth, þegar síðari konan er búin að yfirgefa mik líka?« »Hefur þig aldrei langað til að rita?* »Hann stökk upp og horfði á hana orðlaus af undrun. »Ætlarðu að gera úr mér rithöf- und?« spurði hann tortryggnislega. »Ef þú hefur sama hugsunarhátt og mamma °g marskálkurinn, þá máttu ekki skilja þessa uppástungu þannig, að eg ætli þér að koma Því á prent,« svaraði hún glaðlega. »Frásögur Þínar eru fjörugar og áhrifamiklar. Eg er viss um að þú stílar ágætlega; eg veit þú munir sRrifa með enn meiri tilþrifum en þú segir frá. M>g hefur oft langað til að skrifa það niður, sem þú hefur s.rgt við teborðið.« »Ha ha! þannig hefur þessi strangi ritdóm- ari setið þögull og hávaðalaus við hlið mína, °g mig hefur á meðan þrásinnis langað til að sPyrja, hve mörg nálspor færu í hvert blað á ábreiðunni, sem þú hefur aldrei skilið við þig... Rað var ekki göfugmannlega gert af þér að leika þannig með mig — nei, haltu þér bara saman!« hrópaði hann, þegar hann sá að hún hóf höfuðið stærilát og ætlaði að svara. Leó kom þjótandi inn í þessu. — Læknir- mn var kominn til afa hans og þessvegna var honum leyft að fara til möinmu. íja hérna, pabbi, hvað ert þú að gera í bláu stofunni?« spurði hann. Mainan roðnaði snögglega, ýtti drengnum til ungu konunnar og sagði um leið: • Farðu og legðu handlegginn um hálsinn á mömmu - líttu á, eg þori ekki að koma einni hársbreidd nær en hún leyfir mér - og biddu hana að vera ofurlítið þolinmóða viðþig —og mig líka, áður en við skiljum.« »já, eg ætla að fara með, pabbiH hrópaði drengurinn og vafði handleggjunum utan um ungu konuna. Mamma hefur ætíð sagt mér á kvöldin um háttatímann, að hún ætlaði^ að fara með mig til Magnúsar frænda og Úlrikku frænku, þegar hún færi til Rúdisdorf.« sHvað er þetta, hvernig ert þú búinn að komast að því, að mammaætlar til Rúdisdorf?* spurði Mainan forviða. Hirðpresturinn og hertogafrúin töluðu leyni- lega um það við skotmannshúsið, en við heyrð- um það þó, eg og erfðaprinsinn . . . . Er það ekki rétt, mamma, ætlarðu ekki að lofa mér með þér?« »Pú verður að biðja pabba ósköp vel að lofa þér að heimsækja mig oft,« svaraði hún, án þess að líta upp en þó með fastri rödd, og strauk með fingrunum gegn um hár drengs- ins. »Við sjáum hvað setur,« svaraði Mainan stuttur í spuna og kuldalega, — »Auðvitað ferðu ekki fyrr en eg legg af stað?« »í þvi tilliti skal eg fara alveg að óskum þínum. Ef þú vilt það heldur, skal eg ekki fara frá Schönwerth fyrri en nokkrum dögum eftir að þú ert farinn.« Hann hneigði höfuðið lítið eitt, gekk hratt að borðinu, braut bréfið til Úlrikku saman og stakk því í vasann um leið og hann sagði: »Ennþá hef eg rétt til að gera muni upp- tæka — bréfið tilheyrir mér.« Hann hneigði sig hlægilega djúpt og hátíð- lega, eins og hann hefði fengið áheyrn hjá konungborinni konu, og fór. Rað setti að Leó ákafan grát. Barnið fann til þess, að það átti að missa verndarengil sinn. Endir á fyrri hluta.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.