Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Page 23

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Page 23
HATTPRUÐA STULKAN 143 þitt hæfi, bara ef einhver sveitapiltur vildi hafa þig,« sagði Fanny. •O, eg reyni við Willa, eg hef sagt hon- um, að ég ætlaði að biðja hans, og hann sagði að það væri eins og það ætti að vera. Hann á að messa á sunnudögum, en vinna við land- búnaðinn alla hina daga vikunnar. Pið þurfið ekki að hlæja, við erum búin að koma okkur saman um þetta alt saman.« »Eg hefði haft gaman að sjá framan í Willa, þegar Maud var að masa þetta við hann?« sagði Polly við Fanny. »Hefur þú frétt nokkuð af honum?« hvíslaði Fanny að Polly og Iézt vera að athuga gamla flík. »Hann er stöðugt suður í Mexikó, og eg hugsa að hann hafi ekki frétt neitt um þessa síðustu viðburði. Eg er viss um hann tekur sér þetta nærri, þegar hann fréttir það.« »Pað verður ekki lítið verk að fá sélegan sumarklæðnað upp úr öllu þessu safni, og mér íeiðist að sitja við sauma,« sagði Fanny til þess að rífa hugann frá vissum manni. »Við Jane munum hjálpa þér, og þá mun vakna hjá þér áhugi fyrir þessu starfi. Við er- Uto báðar í skuld við þig eins og Bella, og Það mun gleðja okkur að geta sýnt lit á að endurgjalda eitthvað af henni. Góðverkin end- Urgjaldast oft fyr en varir eins og illverkin.« »Pað eru horfur á að mín yfirborgist,« sagði Fanny, sem gladdist innilega af þvi, hve margir virtust muna smágjafir hennar og greið- vikni. »Kemur fyrir að uppskeran verði ríkari en Það sem sáð er,« sagði Polly, »þótt það varla sannist á okkur Jane, en farðu nú og sprettu sundur kjólnum þeim arna, og svo látum við Jane fá hann til að setja hann aftur saman og 8era hann sem nýjan. En eg tek þennan hatt að mér, geri við haun og skreyti hami og vona Uler takist það vel, enda sé eg þarna nóg af böndum til að prýða hann með. Pessi’ kjóll minnir mig á listaverk, sem Kitty leysti af hendi í fyrra vor. Frú Davenport sendi °kkur, sem kaupbætir, lítinn silkikjól nokkuð slitinn, og mamma sagði að Kitty mætti fá hann ef hún gæti sjálf sniðið hann upp og stækkað hann. Við Kitty lögðum saman í þetta og saum- uðum hann upp, en svo vantaði okkur í báðar undirermarnar og eg sá engin ráð til að bjarga þessu við, en Kitty uppgafst ekki. Hún safnaði saman smápjötlum og saumaði þær saman með þeirri list, að samskeytin sáust ekki nema að nákvæmlega væri skoðað og pjötlurnar, sem settar voru saman voru ekki færri en tíu.« »Eg vildi að eg gæti fengið jörð í nánd við ykkur, það væri svo gaman að geta kynst Kitty þessari, sem getur gert slíka hluti,« sagði Maud. »Jæja, nú erum við víst búnar með úttekt- ina á þessum gömlu flíkum mínum,« sagði Fanny, »og eg er ákaflega þakklát, góða Polly, fyrir allar þínar góðu leiðbeiningar um hvern- ig eg best geti fengið mér sama sem ný föt, og eg vildi óska, að eg yrði jafnvel að mér til sauma og fatagerðar, þegar fram í sækir. og næði handlægni þinni.« »Og eg spái því að þú fáir bráðlega tvær sterkar hendur í viðbót til að vinna með þér í lífsbaráttunni, góða mín,« sagði Polly um leið og hún bjó sig til ferðar. Pessi spádómur hafði þau áhrif á Fanny, að hún var í góðu skapi það sem eftir var dagsins. Framh. A: »Svo þér er alvara að neita mér um 100 króna lán? Pað leynir sér ekki að þú elsk- ar krónurnar þínar.« B: »Pað er nú það sem aðskilur okkur.« A: »Hvernig þá?« B: »Jú, eg elska mínar krónur, en þér þykir vænna um krónur annara manna.« Frúin: »Góðan daginn, prestur góður! Hvað heyri eg, ekki nema það þó, að þér séuð orðinn bindindismaður. Svo nú get eg ekki einu sinni boðið yður bjór.« Presturinn: »Nei, frú, það megið þér ekki — en þér getið reynt að svíkja hann ofan í mig úr hvítölsflösku.«

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.