Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 24
144 NYJAR KVÖLDVOKUR. Ronutranst. Saga úr Búastríðinu eftir Rigmor Falk-Rönne. Maggy starði út af svölunum og horfði löngunarfuil í suðurátt. F*að hafði hún gert á hverjum degi síðan stríðið byrjaði. Búgarður föður hennar lá nefnilega í einu því héraði, er Búar höfðu þegar í stað náð á vald sitt, og síðan hafði hún skygnst eftir á hverjum degi, hvort ensku hersveitirnar kæmu ekki til að hrekja þá í burtu. En dagarnir urðu að vikum og vikurnar að mánuðum, og aldrei hafði hún heyrt svo mikið sem eitt skot eða séð einn ein- asta flokk af næturvörðum. Alt f einu hrökk hún saman. Hún hallaði sér áfram og blóðroðnaði. Rað voru ekki ensku hermennirnir er hún hafði séð, en engu síður sló hjarta hennar af fögnuði, því á hæð nokk- urri langt í burtu kom hún auga á riddara nokkurn, er hún áleit sig þekkja. í sama vet- vangi benti hann með hendinni, og eftir að hafa rent augunum í flýti að dyrunum, sem stóðu opnar á bak við hana, svaraði hún bend- ingu hans með því að þrífa vasaklút sinn og veifa honum. Riddarinn keyrði hestinn spor- um og stefndi í áttina til hennar á harðastökki. Hann var ungur maður, hávaxinn og sterkleg- ur, með laglegt, reglulegt andlit og mjög sól- brent. Maggy varð rjóð sem rós, og augu hennar glömpuðu þegar hann stöðvaði hest sinn fyrir framan svalirnar. Aftur leit hún snöggvast til dyranna. »Alf!«■ hrópaði hún lafmóð.j Eins og hún hafði gert, horfði hann til dyranna, og lýsti svipurinn hálfgerði sektarmeð- vitund og hálfgerðri gamansemi. »Eg — eg hefði líklega ekki átt að vera kominn hingað,« sagði hann í iðrunarróm, »en þegar eg sá þig, gat eg ekki látið vera að færa þér góðar fréttir.* »Góðar fréttir, hvaða góðu tíðindi eru það, Alf?« sReir koma, nú koma þeir loksins, Maggy.« »Hverjir? Englendingar?« »Já, lof sé guði. Eg sá þá frá hæðinni — fótgönguliðshersveit. Hún hélt í áttina til bú- garðs míns, svo eg verð að hraða mér af stað til að mæta henni. Eg er sannfærður um að seinna munu þeir koma hingað. Voru þetta ekki góð tíðindi, Maggy?« »Jú, það var dásamlegt. Kærar þakkir fyrir það sem þú komst og sagðir mér þetta. Pú — þú kemur vonandi fljótlega aftur, ekki satt?« »Rað skal eg gera. Vertu sæl.« »Vertu sæll!« Hann reið á burt á harðastökki, og hún stóð eftir með hálfopnar varir óg augun bros- andi af gleði meðan hún gat nokkuð séð til hans. Svo sneri hún sér við og hljóp inn í húsið. »Pabbi, pabbil* kallaði hún, »hvar ertu?« Hr. Maxwell sat í hægindastól sínum álútur yfir þriggja mánaða gömul dagblöð, þegar Maggy kom þjótandi inn. Hún greip hönd hans og leitaðist við að draga hann að sér. Háttalag hennar var ætíð yfir höfuð að tala or- sök til sífeldrar undrunar hjá honum. Pegar Maggy var barn að aldri, hafði móðir hennar dáið og einhverjir ættingjar hennar á Englandi höfðu alið hana upp. Fyrir hér um bil ári síð- an kom hún aftur til föður síns, há og bein- vaxin ung stúlka, sérlega góð og yndisleg, en mörgum manninum hreinasta ráðgáta, svo rögg- söm og áköf var hún. »Vaknaðu, pabbi,« hrópaði hún, »vaknað,« vaknaðu! Eg hef fréttir að segja þjer — góðar fréttir — ágætar fréttir. Englendingar koma —- loksins — og þú mátt til með að ganga með mér út á svalirnar og skygnast eftir þeim.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.