Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 28
148 NYJAR KVÖLDVÖKUR. að hún gæti komið Alf út, meðan maðurinn var að þessu rölti? í nokkrar minútur stóð hún og hugsaði um þetta eins vel og hún gat'. Ein fyrirætlunin annari óstjórnlegri flaug í gegn um huga hennar. Skyndilega rétti hún sig upp, hún hafði tekið ásetning sinn. Á sama auga- bragði var hún horfin út úr stofunni. Liðsforingjarnir voru ennþá úti á svölunum rólegir með vindla sína, og hvíldu sig eftir hina erfiðu hergöngu. Hermennirnir höfðu einn- ig fengið kraftgóða máltíð og flestir þeirra voru lagstir fyrir og sofnaðir í næði, með kápurnar sínar vafðar utan um sig. Aðeins vesalings Tim Kelly, vörðurinn, sem var hár og þrekinn ír- lendingur, gekk fram og aftur fyrir utan úti- húsdyrnar, þreyttur, hungraður og þyrstur. Rað var af einhverri óheppilegri tilviljun að honum hafði verið gleymt, þegar úthlutað var miðdeg- isskamtinum, og nú óskaði hann einskis fram- ar, en að fanginn væri kominn norður og niður, svo að hann gæti fengið sér eitthvað að borða, og rnætti svo leggja sig út af eins og hinir hamingjusömu félagar hans. Rétt þegar Tim var sokkinn niður í þessar raunalegu hugsanir, birtist honum — sern stigin niður af himnum — lausnarengil! með andlit sem María mey, augu bjartari en stjörnur og lága hljómþýða rödd. Hún spurði hvort hann væri ekki svangur, og sagði að það væri hin mesta skömm, að hann væri látinn ganga þarna til og frá, án þess að fá nokkuð hressandi eftir gönguna. Því næst sýndi hún sig sem mjög svo hugsunarsaman engil, því hún sagði hon- um, að ef hann vildi læðast inn um bakdyrnar, þá mundi hann í herberginu til hægri handar finna heitan kaffibolla, og feiknin öll af köldu keti og brauði. Þetta var alt oý mikil freist- ing fyrir auiningja Tim. Hann friðaði sig við að skúrdyrnar væru vandlega læstar, og í Ijóm- andi fallegum orðatiltækjum, sem láta hverjum írlendingi svo vel, vottaði hann óskir sínar um, að alt líf hennar bæði hér og annars heims mætti verða sífeldur sæludraumur. Eftir það læddist Tim í burt. Um leið og hann var horfinn stökk Maggy til dyranna og lauk þeim upp. lnni fyrir var næsta dimt, aðeins lítil glæta frá ljóskeri í einu horninu. »Alf, ertu þarna?'! hvíslaði hún með óró- legum andardrætti. »Maggy, ert það þú?* sagði hann með undrun. »Já, Já,« sagði hún fljótt. Eg — eg var hrædd um að þeir mundu skjóta þig, Alf. Eg gat ekki afborið það — eg varð að gera tilraun til að híálpa þér. Verðinum hef eg komið í burt og — en þú verður að flýta þér, Alf, hvert augnablikið er dýrt.« »Maggy, þú trúir því þó ekki að eg sé sek- ur, líklega?* »Nei, nei; en engar útskýringar nú, þúverð- ur — Þei, hvað er þetta? Ó, Alf, hann kemur — Vörðurinn kemur aftur. Flýttu þér, flýttu þér. Farðu, í guðs nafni, farðu!« Eitt andarlak stóð hann hikandi. Svo stökk hann inn í skógarrunnann. Það mátti í raun og veru ekki tæpara standa. Á meðan Tim Kelly stóð og skolaði niður kaff- inu, datt honum skyndilega í hug að eitthvað kynni að vera grunsamt við þetta. Hvers vegna hann hugsaði sem svo vissi hann ekki. Honum þótti samt vissara að vera á varðbergi, og flýtti sér því aftur til gæzlu sinnar. Maggy var slopp- in inn í húsið, og Alf kominn yfir hundrað álnir í burtu, þegar hann uppgötvaði að skúr- inn var tómur. Og þá lét hann ekki biða að blása herblástur. í herbúðunum varð uppi fótur og fit, og eftir fáein augnablik voru menn farnir að elta flóttamanninn. En eftir stutta stund komu her- mennirnir aftur tómhentir, og sögðu að fang- inn væri horfinn án þess að láta eftir sig nokk- urt merki. Tim Kelly var síðan færður fiam fyrir kafteininn, sem orðinn var reiður, og hann yfirheyrður með ótal flækjuspurningum. Þótt Tiin væri mjög gramur yfir fláræði þessarar »elskulegu, ungu stúlku«, gat hann þó ekki feng- ið af sér að Ijósta upp um hana. Hann varð að vísu að játa, að hann hefði verið gintur frá gæzlunni, en hann lét sér detta í hug að gefa

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.