Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Qupperneq 32

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Qupperneq 32
152 NYJAR KVÖLDVÖKUR yður annan. Hér á eftir mun eg, ungfrú Max- well, trúa betur kvenlegri eðlishvöt, en mann- Iegu áliti. Og nú, piltar! þrefalt húrra fyrir þeim báðum!« Þegar húrrahrópiti voru hætt, sneri hersir- inn sér að Maxwell. »Svo það var þessi unga stúlka, sem var vini sínum svo trygg, að hún hætti sér fyrir herrétt hans vegna. Eruð þér svo hamingju- samur að vera faðir hennar?« »Já,« sagði Maxwell, og góðlega andlitið hans ljómaði af stærilæti og gleði. »Húntreysti honum, en það gerði eg ekki. Til allrar ham- ingju var það hún sem hafði rétt fyrir sér. Og nú er aðeins eitt, sem eg get gert til að út- vega mér frið og sátt við þau.« Hann greip hönd Maggyar og.lagði hana í hönd Alfs. Og húrrahrópin byrjuðu á ný. (Endir.) H EITIÐ. Saga eftir Mabel H. Robins. Eg var aðeins seytján ára gömul — seytján ára flón, sagði fólkið. En eg áleit samt ekki að eg væri flón, því að eg hafði mjög gott álit á sjálfri mér, bæði hvað ytra útlit snerti og gáfur mínar. Eg var sem á glóðum þetta kvöld því, að nú átti eg í fyrsta sinn að sitja í samkvæmi við gestaborð föður míns og skemta gestum hans. Eg hafði altaf verið eftirlætisgoðið hans, og veitti mér því létt að fá hann til þess að lofa mér og stallsystur minni, sem Dolly Craven hét, að vera með gestunum íkvöld. Hann hélt bara að okkur mundi leiðast þar. »Eg skal segja þér það, Cissa mín, að það eru aðeins karlmenn, sem verða gestir mínir í kvöld. Þeir koma til þess að fara á skotveiðar í fyrramálið og þeir tala líklega ekki um ann- að, svo ykkur þykir líklega ekki skemtilegt.« »Hverjir koma. pabbi?« spurði eg. »Winton lávarður og bróðir hans, Sir Ge- orge Oldny og Carruthers. Lávarðarnir eru rosknir menn og fremur óskemtilegir borðu- nautar fyrir börn einsog þig.« »En Carruthers, hver er hann?« »Hann er rithöfundurinn, sem mest er látið af nú um tíma. Hann er ekki nema tuttugu og sjö ára, og hefur þó ritað bók sem hefur vak- ið mikla athygli. Annars er hann vanastur við að ræða við mentaða menn og kærir sig lík- lega varla um að spjalla við hálfvaxnar skóla- stelpur.« Pabbi hló og kleip mig í eyrað, en eg Iét ekki hugfallast þrátt fyrir þessa ræðu hans, held- ur var ennþá ákveðnari í að vera með gestun- um um kvöldið. Eg mintist á rithöfundinn við Dolly og lét borginmannlega. »Hanu á að sitja næstur mér og eg ætla að lofa honum að dást að því, hvað mikið eg veit og kann.« Til þess að fullkomna áhrif mín sem bezt, bað eg pabba um Anstruther-demantana alþektu, og fékk þá eftir nokkra eftirgangsmuni. Eg vissi það vel, að eg Ijómaði frá hvirfli til ilja af demöntum og skrautgripum, þegar eg gekk inn í móttökusalinn. Pabbi var þar með öðrum manni. »Petta er dóttir mín, Carruthers,« sagði hann með dálitlum sjálfsþóttakeim í röddinni, þótt mér dyldist ékki að hann leit fremur óhýru auga til gimsteinanna í hári mínu og fötum. Ralph Carruthers var hár maður og herða- breiður með föstum andlitsdráttum og dökk- bláum augum. Mér gramdist nokkuð, að hann leit í speg- ilinn í staðinn fyrir mig, er hann hann hafði heilsað mér. »Eg vona að þér hafið skemt yður vel á ferðinni,« sagði eg hálfhikandi, til þess að eitt- hvað yrði úr samræðum. »Pakka yður fyrir,« svaraði hann, «egskemti mér mjög vel. Landslagið er svo fagurt hérna, að það má vera hreinasta unun að eiga hér heimu.« Eg hristi höfuðið. »Pað er ákaflega afskekt og maður fær hér engar fréttir fyr en mörgum

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.