Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 36

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 36
156 NYJAR KVÖLDVÖKUR en áður, eins og eg væri einhver sjaldséður Hann virtist fara hjá sér og fékst ekki til gripur. að líta á mig. »Já, eg er hræddur um, að eg sé mjög ná „Eg hélt að það væri skylda rithöfunda að skyldur honum,« sagði hann kuldalega. »Eg er^. kynna sér sálarlíf manna,« sagði eg eins og sjálfur »þessi maður sem skrifar skáldsögur«!« við sjálfa mig, »en annars bjóst eg við að jafn- »Er það mögulegt?* sagði eg kæruleysis- lega. Hafi hann búist við undrun og auðmýkt af minni hendi, hefur honum algerlega brugð- ist sú von. »Eg er hissa á að þér skulið ennþá vera ókvæntur,« sagði eg því næst, og sá að hon- um komu orð mín kynlega fyrir. »Og hvernig dettur yður í hug að furða yður á því?« spurði hann og leit fast á mig eins og til að neyða mig til að dást að sér. »Eg hélt að það hlyti að hjálpa yður við ritstörf yðar, með því svo náin kynni af konn gjörði yður hæfari til að lýsa sálarlífi kvenna. Vitið þér að kvenpersónurnar í skáldsögum yð- ar eru veikasta hliðin yðar sem skálds? Rær eru virðingarverðar og góðar — það veit ham- ingjan, en Iitlausar myndir eru þær, fölvar og óeðlilegar, og alveg gjörsneyddar þeim gáfum, sem prýða kvennmanninn mest.« »En ef eg vildi nú hafa þær svo?« sagði hann þurlega og mér rann í hug hvlík fífl- dirfska það var sem eg hafði leyft mér, að fara að setja út á ritverk hans upp úr þurru. Eg andvarpaði þreytulega. »F*að er einmilt það leiðinlegasta ef svo er,« bætti eg við. ^Pessar óskemtilegu, dauðu kvennamyndir virðast vera hugsjón yðar. En þar sem hugsjón yðar ber slíkan blæ, er eðli- legt að söguhetjur yðar dragi dám af því, og þar sem söguhetjur yðar eru svo hversdagsleg- ar, þykir mér mjög hætt við, að konan yðar verði af sama tægi.« Hann brosti að orðum mínum. »Pað má þó að minsta kosti heyra, að þér lesið bækur mínar,« sagði hann. »Eg? Ójá, eg lítvanalegaí »Mudie’s box«, þegar það kemur út. Eg hefi litið yfir mestalt sem þér hafið ritað,« sagði eg illgirnislega. »Fyrst svo er, að þér hafið ekki lesið það vandlega, þá getið þér ekki um það dæmt.« vel Mr. Carruthers myndi hafa komist að raun um, hversu mikill galli það er að vera fljótur að komast í ilt skap.« Nú leit hann upp, sneri sér að mér og horfði framan í mig. Eg brosti góðlátlega, og mér virtist hann festa augu sín á þessu brosi. Yglibrúnin hvarf og hann brosti líka. Svipur hans og andlitsfall, sem annars var svo fritt, fékk svo hugnæman blæ, þegar hann brosti, að mér var næst skapi að óska, að hann héldi áfram að vera í illu skapi. »Og eg get ekki skilið,« sagði hann sein- lega, »hvaða ánægju Lady Cicely hefir af því, að leggja sig fram til að koma Mr. Carruthers f ilt skap. Annars vænta flestir þess, þegar þeim veitist sá heiður að hafa hefðarmey fyrirmötu- naut, að hún geri alt til þess að tíminn líði sem ánægjulegast. »Hef eg þá látið tímann líða óánægjulega?« spurði eg með iðrunarbrosi. »Rér hafið af fremsta megni leitast við að vera óviðfeldin,« sagði hann. »Hvernig þá?« Hann þagði um stund. »Gott og vel, þér byrjuðuð með því að halda því fram, að þér könnuðust ekki við mig. Rað var ekki vingjarnlegt, eða er ekki svo?« »Halda því fram?« tók eg upp sakleysislega. »Fyrst Miss Craven mundi eftir mér, því skylduð þér þá ekki líka hafa gert það?« »Eg býst við að Miss Craven hafi betra minni en eg — gagnvart smáviðburðum,* sagði eg dauflega. »Ætli svo sé?« svaraði hann rólega. »Að minsta kosti er hún ekki eins tannhvöss.* Blóðið stökk til höfuðs mér, og eg misti vald yfir mér snöggvast. »Eg hefi farið illa að ráði mínu,« sagði eg, »en eg skal reyna að bæta fyrir brot mín og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.