Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 41

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Síða 41
SAMUEL MORSE. 161 og félaus árið eftir. Varð hann þá að fá ián íyrir matnum á leiðinni og ferðinni, svo að hann varð að greiða rentur af skuldum sínum. Hugur hans var svo bundinn við þessa upp- götvun og framtíðarráðabrugg sitt, að hann sinti lítið list þeirri, sem hann og börn hans áttu að lifa af. Rað var líka lítið um málverka- pantanir hjá honum. Menn fóru heldur til ann- ara. Og þó hann gerði sér glæsivonir um auð og heiður af uppgötvun sinni, varð hann samt að þiggja fjárstyrk af öðrum án þcss að geta sannað, að nokkurn tíma yrði nokkurt gagn að tilraunum hans. Svo er oft erfið brautin þeirra, sem vinna mannkyninu mest gagn. »Fram á haustið 1837,« segir hann, »vpru skeytatæki mín svo illa gerð, að eg dró mig » hlé með að sýna þau. Eg var svo fátækur, að eg hafði engin ráð með að búa til tæki, sern vaeru frambærileg útlits, svo að eg gæli sett þau á sýningu og gæti vonað að skoð- endum litist á þau. Eg vildi alls ekki láta þetta sem eg hafði varið svo miklu erfiði til, verða að athlægi. Fram á sumarið 1837 varð eg að a málarapenslinum mínum. En þá fór Al- fred Vail að taka eftir skeytafærum mínum. Fjárhagur minn var þá ekki betri en svo, að eg svaf í vinnustofu minni, og borðaði þar mánuðum saman, sótti efnið í matinn i mat- ^ölubúð eina og bjó hann til sjálfur. Og til Þess að vinir mínir sæju síður, hvað eg átti erf- ‘ff> var eg vanur að kaupa mat minn á kvöld- ln>« Stundum var hann matarlaus heilan sól- arhring. Bræður hans hjálpuðu honum á margan hátt. Þeir voru eigendur og útgefendur að blaði, °g hann hafði verkstofu sína í húsinu, sem blaðið var gefið út í, og var hún bæði vinnu- stofa, dagstofa, svefnherbergi og eldhús hans. ^>ð annan vegginn stóð legubekkur, sem hann ^vaf í á nóttunni og hinumegin rennismiðja. ar rendi hann í partana í tæki sín. Og sýnis- kornin tálgaði nann sjálfur úr tré og hnoðaði steypimót úr leir, ^egar Morse var í París 1839, hafði hann ‘ff þar annan uppfinnanda, sem þá hafði loks náð sér á stryk eftir margra ára baráttu. Það var Daguerre, er fann Ijósmyndagerðina. Morse varð mjög fanginn af því, og Daguerre lofaði honum að senda honum skýrslu um aðferðina óðara en samningar væru á komnir milli hans og stjórnarinnar. Daguerre hélt hér orð sín og Morse hefur verið fyrstur manna í Ameríku, sem sá þetta rit og tók fyrstur Ijósmyndir. Hann og prófessor Draper, sem líka var við háskól- ann í New York, tóku fyrstu andlitsmyndir í heimi. Meðan Morse komst ekkert áfram fyrir fé- leysi, höfðu þeir Steinheil og Cok-Whaetstone fengið styrk tii sinna framkvæmda í Evrópu og reyndu nú til að koma skeytafærum sínum að í allri Evrópu. Pótt tilfæringar Morse væru betri, var alt horf á að hann mundi alveg verða út undan. Veturinn 1842 — 1843 sneri hann sér aftur ti! þingsins með síma sinn, og lagði þá maður einn fram lagafrumvarp um, að þingið legði fram 30,000 dollara til rafsegul-hraðskeyta- lína, og átti svo að gera tilraunir undir forustu sljórnarinnar. Mikið háð og spott var gert að tillögu þessari, en þó tókst ekki að drepa mál- ið eða kæfa það í nefnd. Pað komst í gegn og gekk þaðan til sambandsþingsins og sofnaði þar um langan tíma. En rétt í þinglokin varð það þó tekið upp á dagskrá og var samþykt. Pað mátti ekki seinna vera, því að þegar lög- in voru samþykt, undir lágnættið þriðja marz 1843, átti Morse ekki nema fáeina aura í vasa sínum. Óðara en lögin voru samþykt fóru þeir Morse og hjálparmenn hans. Alfred Vail, Oale o. fl. að vinna af kappi. Tilraunalína var Iögð mílli Washington og Baltimore. Fyrst reyndu þeir' að grafa línuna í jörð niður, og gekk í það mikill tími og kostnaður, því þeir einangr- uðu vírinn með bómull og lakki, og settu blý- pípu utanum. En þegar þeir reyndu að þenja vírinn á stengur, gekk alt miklu fljótara. 24. maí 1844 var fyrsta hraðskeyti sent alla leið, en áður hafði skeyti verið sent spottakorn af leiðinni. Pað var um kosningu forsetaefnis. 21

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.