Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Page 48
168 NYJAR KVÖLDVÖKUR (f 1811) í ritum sínum, »en guðfræðingarnir verða að skýra hvernig þetta hefur viljað til. Legsteinninn er enn til, og það lifa enn menn hér í borginni, sem hafa séð hann og letrið á honum.« Pegar kona Sebastians Bachs, tónskáldsins mikla, andaðist, var farið að búa undir jarðar- förina. eins og vant er. Bach var aldrei vanur að skifta sér af neinu heima fyrir, heldur láta konu sína sjá fyrir því öllu. Þá kom inn til hans gamall þjónn þeirra, sem átti að kaupa sorgartjöld í stofuna, og bað hann um pen- inga til þess. Rá sat hann þar við borð sitt, hallaði höfðinu fram á það og svaraði grátandi: sRú verður að fara til konunnar minnar með það,« Hlíðin mín! Mörg er íslands svipfríð sveit sælda þakin standi, en Blönduhlíð eg bezta veit bygð á Norðurlandi. Ró að hennar ljúft sé land, létt og skógarvana, eitthvert hjartnæmt blíðuband brögnum tengir hana. Hölda eyðir hugarmóð hún, sem fagur svanni, undurhlýja ástarglóð elur í hverjum manni. Veitir sínum mörgum mög margar gleðistundir. Heyrast landsins hjartaslög hennar brjóstum undir. Hefur ótal hrakið mein hennar farsæll gróður. Hún er lífæð öflug ein okkar fósturmóður. t*að er hjartkær hlíðin mín hugtak bæna minna, að fögur verði framtíð þín og frjálsra barna þinna! Bráðum verður plægð með plóg prýðin þinna landa, þess á milli þakta skóg þig eg sé í anda. Pú átt margan mætan reit, er mýkir tiauðir hjarðar. Pú ert líka sólskinssveit sælust Skagafjarðar. Um þig lykur, lífs með von, Ijósríkt geislahafið, Rú hefur margan sólarson sjafnarörmum vafið. Meðan sól á skaut þitt skín, og skreytir þína haga, þig munu beztu börnin þín blessa alla daga. Sigurjöti Gíslason. ***** • Norðurálfuófríðurínn. Hagkveðlingaháttur. Manndóms spiit er menningin, margra vilt er kenningin, vonzku fylt er veröldin, i verri en tryltur heiðinginn. Kristin þjóðin hver sem má kvistast óðum, fer í strá, þyrstir í blóðið berast á, byrstir og móðir eru þá. Illa blóðug standa stríð, stilla ei óða branda hríð spilla gróða, granda lýð, grilla jrjóðir vanda of síð. Eyjarskeggi. Óskað er eftir vísubotni við þennan vísu helming: Hér a landi hdð er strið við hajis, eld og sjóinn. J. S.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.