Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Side 27
Kv. 73 DÆTUR FRUMSKÓGARINS hennar gat eg ekki hugsað til þess að sökkva líkama hennar í hina köldu, svörtu ^old, þess vegna smurði eg hann og flutti siðan um svarta nótt hingað í bátinn. Eng- lnn vissi um þetta, nema kapillán haciend- Unnar, faðir. Matteo. Með honum hefi eg °ft beðið fyrir henni, sem var mín eina gleði hér á jörðunni, en þó hefi eg oftar beðið einn.Einhverju sinni skal hún,ef unnt verður, fá að hvíla í sömu gröf og eg, svo að duft okkar geti blandast saman, á sama hátt og við vorum einn líkami og ein sál í Ufanda lífi. Gonsalvo Rodriquez“. Urasalinn starði lengi þögull og sorg- bitinn á bréfið. Hann draup höfði og nokk- Ur tár hrundu niður kinnar hans. Var það efni bréfsins, sem hafði slík áhrif á hann? Að nokkru leyti var því Þann veg háttað, en þó var það fyrst og fretnst rithöndin á því, sem olli honum hryggðar og heilabrota. Skriftin var frekar sfór og þróttmikil. Drættirnir voru per- s°nulegir og dregnir af slíku listfengi, að Ver sá, sem einu sinni sá þá, gleymdi þeim ^plega aftur. Það voru þessir drættir shriftarinnar, sem vöktu hjá úrasalanum nlfgleymda endurminningu. Hann las bréfið aftur og aftur og taut- a r fyrir munni sér: »Kynlegt er, hvað þessi skrift minnir mikið á. . . .“ Uann lauk ekki setningunni, því að í Semu andrá tók Kosta til að urra og þaut fangelsisdyranna. »Hvað er þetta, gamli?“ sagði Ruben og ^ekk að dyrunum. Uegnum opið á hurðinni sá hiann út í ?arðinn. Veitti hann þá athygli manni, sem "^st meðfram húsveggnum. Var hann lndíánaboga í hendi og mjög flótta- eSur á. svipinn. Kuben þekkti strax, að þetta var Bande- °g gat sér til um, hvað hann hefði í ras hyggju, því að svipur hershöfðingjans leyndi því ekki, að hann bjó yfir einhverj- um illum ásetningi. „Hann mun ætla að finna mig í fjöru“, tautaði hann, „sennilega óttast hann, að eg muni geta borið vitni á móti honum, um það er lýkur. Eg verð að flýja tafarlaust. En vera má, að fundum okkar eigi eftir að bera saman, þó síðar verði, og þá munum við eiga kost á að gera upp reikningana. Eg mun aldrei ata hendur mínar í blóði slíks þorpara, en hitti eg fyrir þann dóm- ara, er virðir að nokkru lög og rétt, þá skal þessi mannhundur fá makleg málagjöld". Að svo mæltu tók hann hundinn á herð- ar sér og snaraðist niður í bátinn. Vöru- kassa sínum hélt hann á í hendinni. Þegar hann hafði losað sig við hvort tveggja, fór hann aftur upp í stigann, hagræddi gólf- ábreiðunni þannig, að hún félli sem eðli- legast yfir hlerann, þegar honum væri lok- að. Síðan skellti hann honum aftur á eft- ir sér. Þetta skeði rétt áður en Banderas leit inn í klefann. Umferðasalinn losaði með göngustaf sínum kaðalstigann af krókum þeim, sem héldu honum föstum í skörinni og lét hann falla niður í bátinn, síðan sett- ist hann undir árar og rer'i í skyndi út úr jarðhýsinu og fram á sólroðið fljótið. Var auðséð á öllu, að hann kunni verk sitt vel, því að báturinn hentist áfram. Er hann var kominn út í strauminn, skyggndist hann um, en sá ekkert grunsamlegt. Því næst sneri hann bátnum upp í strauminn. Nokkru ofar með fljótinu, reri hann upp að bakkanum. Hann festi bátinn við skógargrein, þar sem lítið bar á honum og steig í land. Því næst hóf hann líkið á herðar sér og hélt inn í skóginn. Hundur- inn þaut snuðrandi á undan honum. Eftir langa göngu komu þeir að sumachtrénu, þar sem þeir Zurdo og Santuscho höfðu falið jarðneskar leifar plantekrueigandans, kvöldið áður. 10

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.