Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Síða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Síða 38
84 RU GGUHESTURINN N. Kv. mínum“, sagði móðir hans, „þá þætti mér gaman að vita hvað við ættum að gera. „En þú veizt það, mamma, að þú þarft ekki að gera þér neinar áhyggjur, er það ekki?“ endurtók Paul. „Mér þætti ákaflega vænt um að vita það“, sagði hún þreytulega. „Já en þú getur vitað. Eg á við, þú ættir að vita, að þú þarft ekki að gera þér neinar áhyggjur!" sagði hann ákafur. „Er það já? Þá ætla eg að hugsa um það“, sagði hún. Leyndarmál Pauls var nafnlausi tré- hesturinn. Eftir að hann hafði losnað und- an eftirliti barnfóstrunnar, hafði hann lát- ið flytja rugguhestinn inn í svefnherbergið sitt á efstu hæð í húsinu. „Þú ert orðinn alltof stór til þess að leika þér að rugguhesti“, hafði móðir hans sagt. „Já, en sjáðu til, mamma, mig langar til að hafa eitthvert dýr hjá mér, þangað til eg fæ lifandi hest“, háfði hann svarað. „Finnst þér hann vera góður félagi? spurði móðir hans hlæjandi. „Já, ágætur! Mér finnst svo gott að hafa hann hjá mér, þegar ég er uppi,“ sagði Poul. Og nú stóð hesturinn í svefnherbergi Pouls, snjáður og tötralegur, en tígulegur eins og gæðingur, sem stirðnað hefir á sprettinum. Derby-hlaupin nálguðust, og með hverj- um degi varð Poul æstari og eirðarlausari. Hann heyrði naumast, þegar yrt var á hann, hann varð æ veiklulegri og það var annarlegur glampi í augunum. Það kom oft fyrir, að móðir hans varð skyndilega gripin af undarlegum kvíða út af honum. Stundum þegar hann var ekki nálægur, greip hana skyndilegur kvíði, sem nálgað- ist angist, og fékk hún þá óstjórnlega löng- un til að leita hann uppi og fullvissa sig um, að ekkert væri að honum. Tveim dögum fyrir veðreiðarnar var hún í stórri veizlu inni í borginni, þegar eitt af þessum kvíðaköstum út af drengn- um hennar — frumburðinum hennar —- greip hana svo ákaft, að hún gat varla taiað. Hún barðist gegn þessari kvíðatil- finningu af öllum mætti, því að hún var ekki hjál. áarfull. En henni reyndist það um megn. Hún varð að fara niður og hringja heim. Barnfóstran var dauðskelk- uð við það að vera hringd upp um hánótt. „Eru börnin ekki frísk, Miss Wilmot?“ „Ha, jú, jú, þau eru öll frísk.“ „En Poul? Er hann frískur?" „Það bar ekkert á honum, þegar hann fór að hátta. A ég að fara upp að líta eftir honum?“ „Nei,“ sagði móðir Pouls treglega. „Nei, þess þarf ekki. Það er allt í lagi. Þér skul- uð ekki vaka eftir okkur. Við komum ekki mjög seint heim.“ ' „Það er gott,“ sagði barnfóstran. Þau hjónin komu akandi heim að hús- inu um klukkan eitt. Allt var hljótt. Móðir Pouls fór upp á herbergið sitt og klæddi sig úr hvítu loðskinnskápunni. Hún hafði sagt herbergisstúlkunni, að hún þyrfti ekki að bíða eftir sér. Hún heyrði manninn sinn niðri blanda sér whisky og sóda. Svo læddist hún upp í herbergi sonar síns, rekin áfram á þessum undarlega kvíða. Hún læddist hljóðlaust eftir gang' inum. Heyrði hún þrusk einhvers staðar? Hvað var það? Hún stóð hreyfingarlaus og stirðnuð fyrir utan dyrnar og hlustaði. Hún hélt niðri í sér andanum. Það var þruskkennt hljóð, en þó hvinkennt og voldugt. Eitt' hvað stórt, sem var á ofsalegri hreyfingtt- Hvað var það? Guð minn góður. hvað vaf það? Hún átti að þekkja það. Hún fann að hún þekkti hljóðið. Hún vissi hvað þa^ var. En þó gat hún ekki komið því fyrir sig- Hún gat ekki sagt hvað það var. Og áfraú1 hélt það látlaust, eins og vitfirring.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.