Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 32

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 32
78 RU GGUHESTURINN N. Kv- Drengurinn sá, að hún trúði honum ekki; eða öllu heldur gaf ekki gaum að full- yrðingum hans. Þetta gramdist honum, og það vakti hjá honum sterka löngun til að knýja fram eftirtekt hennar. Fálmandi og í barnslegri einfeldni, hóf hann einn leitina að leiðinni til „heppn- innar“. Hann læddist um með leynd í þungum þönkum og gaf engan gaum að öðru fólki, í stöðugri leit að heppninni. Hann þráði -heppnina, hann þráði hana, hann þráði hana. Þegar systur hans voru að leika sér að brúðum í barnaherberginu, sat hann á stóra rugguhestinum sínum og hvatti hann áfram með svo æðisgengnum tilburðum, að þær störðu óttaslegnar á hann. Hesturinn tók stórar dýfur, svart hárið á drengnum flaksaðist til, og það var undarlegur glampi í augunum. Systurnar þorðu ekki að tala til hans. Þegar hann hafði riðið þessa æðis- gengnu ferð á enda, fór hann af baki, stað- næmdist fyrir framan rugguhestinn og horfði fast framan í hann. Munnurinn var rauður og opinn, augun stór og glergljá- andi. „Nú!“ sagði hann hátt og skipandi við fnæsandi hryssuna. „Farðu nú með mig þangað sem heppnin er! Hana nú!“ Hann sló á hálsinn á hestinum með svipunni, sem hann hafði beðið Oscar frænda um að gefa sér. Hann vissi, að hest- urinn gat farið með hann þangað sem heppnin var, ef hann aðeins hvetti hann nógu mikið. Svo settist hann á bak aftur og hóf djöflareið sína að nýju, í von um að komast þangað að lokum. Hann vissi, að hann mundi geta komizt þangað. „Þú brýtur hestinn þinn, Poul!“ sagði barnfóstran. „Hann ríður alltaf svona! Það vildi ég, að hann vildi hætta því,“ sagði eldri systir hans, Joan. En hann starði aðeins þegjandi á þau. Barnfóstran gafst upp við hann. Hún gat ekkert við hann ráðið. Dag nokkurn kom Oscar frændi og móð- ir hans inn, þegar ein af þessum djöfla- reiðum stóð sem hæst. Hann talaði ekki við þau. „Halló, ungi knapi! Er það verðlauna- hestur, sem þú ríður?“ sagði frændi hans. „Ertu nú ekki bráðum orðinn of stór til að leika þér að rugguhesti? Þú ert ekkert smábarn lengur, það veiztu vel,“ sagði móðir hans. En hann gaut aðeins til þeirra bláum augunum. Hann talaði aldrei við neinn, þegar hann var á þessum ferðum sínum. Móðir hans horfði á hann kvíðafull. Að lokum stöðvaði hann hið vélræna hlaup hestsins og fór af baki. „Jæja, ég komst þangað!“ sagði hann sigri hrósandi. Hann stóð gleiðfættur á þreklegum fótleggjunum og blá augun glömpuðu annarlega. „Hvert?“ spurði móðir hans. „Þangað sem ég ætlaði,“ sagði hann og leit hvasst á hana. „Það er rétt, drengur minn!“ sagði Osc- ar frændi. „Hættu ekki fyrr en þú kemst þangað. Hvað heitir hesturinn?“ „Hann heitir ekkert,“ sagði drengurinn- „Og kemst áfram fyrir því?“ spurði Oscar frændi. „Já, hann hét ýmsum nöfnum. Hann hét Sansovino í vikunni sem leið.“ „Ha? Sansovino? Sá, sem vann Ascot- veðreiðarnar. Hvernig vissirðu um nafo hans?“ . „Hann er alltaf að tala um veðreiðat við Bassett,“ sagði Joan. Oscari þótti gaman að heyra að þessi litÞ frændi hans hefði svona mikinn áhuga a veðreiðum. Bassett, ungi garðyrkjumaðuf' inn, sem særzt hafði á vinstra fæti í stríð' inu, og fengið þetta starf sitt fyrir miu1' göngu Oscar Cresswell, var lifandi frétta' blað, hvað viðvék öllum veðreiðum. Hauí1

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.