Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Síða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Síða 42
88 FRÁ AUSTFJÖRÐUM TIL EYRARBAKKA N. Kv. Drengur einn ferjaði og reri einni ár. í fyrstu ferðinni fór frúin ásamt börnum sín- um. Drengurinn dró ferjuna fyrst upp með bakkanum, en eftir að hann lét frá landi, dansaði ferjan yfir öldur og iðuköst undan straumi, unz þau loks náðu landi í lygnri vík. Þótti frú Th. sem Jökulsá ætti að heita Skjálfandafljót, því að engu væri líkara en árstraumurinn væri æstur upp af einhverj- um dularöflum, sem í djúpinu byggju. Bát- urinn skylfi í vatninu, og þeir, sem í honum sætu, skylfu af hræðslu. Þegar yfir ána kom, hlúði frúin sem bezt hún gat að veika barninu. Sat hún síðan á bakkanum hjá börnum sínum meðan samferðafólkið og farangurinn var ferjað yfir, en var allan tímann gagntekin af skelfingu við tilhugsunina um, hvað um hana yrði, éf ferjunni hlekktist á og hún sæti þar alein inni á reginöræfum ásamt þremur smábörnum. Allt gekk þó slysalaust, en 3 klukku- stundir tók það að koma öllu yfir um. Var ferðinni síðan framhaldið í áttina til Mý- vatns. Segir frú Th. svo frá: Við fórum nú framhjá hinum furðulegustu stöðum á Is- landi. Náttúra þeirra er með þeim hætti, að hún töfrar hvern þann, sem þar fer um. Árum saman hafði ég þráð að koma á þessar slóðir, en nú fór ég þar um án þess að veita umhverfinu athygli, eða sýna nokkurn vott aðdáunar. Þarna er þurra- baðið, hellir eða hola, þar sem heitar gufur stíga upp úr iðrum jarðar, svo að hver, sem þar kernur getur fengið sér gufubað. Sums staðar, heyrast sífelldir brestir í jarðskorp- unni, og koma þeir hver eftir annan, og fylgif reykjargusa neðan úr jörðunni hverjum bresti. Á einum stað er þarna hringmyndað svæði ámóta stórt og Kon- gens Have í Kaupmannahöfn, þar sem gos- brunnurinn er. Hér er einnig gosbrunnur, sem gýs vatninu marga faðma í loft upp, en vatnið er leirblandið og þegar það féll aftur niður í hverinn með háum þyt slett- ust leirgusur á götuna þar sem við riðum. Eitt andartak var allt kyrrt, en brátt reis annar vatnsstrókur upp og svo koll af kolli. Fylgdarmaðurinn reið á undan og áminnti okkur um að feta í slóð sína, svo að við brenndum ekki fætur hestanna. Við og við gaus á móti okkur reykjarsvæla með ógurlegum óþefi. Guli sandurinn, sem við riðum um, var hreinn brennisteinn. Allt þetta sá ég og heyrði, en ég var sljó og tilfinningalaus, því að allur hugur minn dvaldi hjá veika barninu. Loks leið daguf að kveldi, og þegar við þá af fjallsbrún einni sáum yfir hinn fagra dal umhverfis hið yndislega Mývatn, þökkuðum við guði, að hafa leitt okkur aftur til mannabyggða án fleiri slysa. Þau stefndu nú heim í Reykjahlíð. Þaf höfðu ferðamenn slegið tjöldum og í tjald- inu sat miðaldra maður og las í biblíunni- Maður þessi var dr. E. Hendersen, sem þá ferðaðist hér á vegum biblíufélagsins brezka. Heima í Reykjahlíð komust þau að raun um beinbrot Agötu. Þótt lítil værU hjálpartæki tókst hjónunum að binda um brotið með aðstoð Hendersons og leið barn- inu, sem þjáðist mikið meðan verið var að koma brotinu saman, bærilega um nóttina- En bæði aðgerð þessi og undirbúningur undir ferðina næsta dag olli því að nætuf' hvíldin varð stutt. Daginn eftir fóru þau frá Reykjahlíð- Um Agötu litlu var búið á fjöl, sem stú' dentinn reiddi. Miðja fjalarinnar hvíldi á þófanum en úr báðum endum hennar lágu bönd upp um axlir manninum. Teymt var undir honum, svo að hann þurfti einski5 annars að gæta en láta fjölina halda jafU' vægi. Vegurinn mátti kallast greiðfær. hann fyrst yfir hraunbreiðu, en síðan uU1 sandauðnir (Hólasand). En hins vegaf þjáði mývargurinn ferðafólkið mjög. Mý' flugurnar voru stórar, gráloðnar með siU' urgljáandi vængi. Mergð þeirra er ótrúle§ og í hitum er mýbitið óþolándi bæði fyr*f

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.