Nýjar kvöldvökur - 01.04.1950, Síða 37

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1950, Síða 37
N. Kv. SVEINN SICYTTA 71 þekktur fyrir að skerast undan að hjálpa til, þegar ættjörðinni er svona mikil bætta bú- in?“ „Þeir leggja okkur til riddara, eins og þeim ber skylda til, ásamt úreltum vopnum, sem fáir kunna að fara með, enda er hávað- inn af hermönnunum hlaupasveinar, sjó- menn og matsveinar. Já, það veit trúa mín! Við þorum naumast að hugst né tala, og aldrei breytum við öðruvísi en eftir geð- þótta aðalsins." Gabel hafði hingað til fylgzt með samtal- inu af greinilegum áhuga. Oft var hann kominn fram á fremsta hlunn með að segja eitthvað, en hann þorði ekki að láta í ljós álit sitt í nærveru drottningarinnar án þess að vera ávarpaður að fyrra bragði. Við síð- ustu orð konungsins lék óljóst bros um varir hans. Konungurinn tók eftir því. „Þér brosið, Gabel!“ sagði hann. „Eg brosi að mínurri eigin hugsununr, yð- ar hátign.“ „Út með það, jrér eruð vanir að leggja eitthvað gott til málanna.“ „Mér finnst, að úr því að hinum danska aðli hefur áskotnazt þau hlunnindi, sem liann er aðnjótandi nú meira fyrir göfug- uglyndi konungs en fyrir verðleika sakir, þá sé það einungis undir yðar hátign komið að setja skorður við því.“ „Við hvort áttu?“ spurði konungurinn, „hlunnindi aðalsins eða göfuglyndi vort?“ „Ég á við hvort tveggja, yðar hátign.“ „Vitið þér, að þér ráðið okkur Jrar með að ganga í berhögg við aðalinn og ríkisráðið.“ „Yðar hátign mun ekki þurfa að ganga í berhögg við aðalinn, heldur við frumlög- mál lífsins. Ogyðar hátign mun vera viss um sigur, ef Jrér aðeins vinnið rétta bandamenn til fylgis við yður.“ „Og hverjir skyldu þeir nú vera?“ „Hinir grófu eiginhagsmunir." „Það þýðir það sama og kollvarpa bæði aðlinum og ríkisráðinu.“ „Það þýðir að stjórna í stað þess —“ „Áfram með það!“ sagði konungurinn. „I stað þess að láta stjórnast af öðrum.“ „Gleymið þér þeim meðulum, sem þarf til slíkrar baráttu?“ „Vissulega ekki,“ svaraði Gabel með sömu stillingu sem áður. „Vopnið, sem jrarf til þess er þegar fund- ið, og maður með jafnmikla snilldargáfu og yðar hátign, mun hafa einhver ráð með að láta sér hugkvæmast hvernig á að beita því vopni.“ Konunginn setti hljóðan, hann hallaði sér aftur á bak í stólnum og starði beint fram fyrir sig, án þess þó að beina augunum að nokkrum sérstökum hlut. „Hvernig myndi Jrað svo vera seinna meir?“ spurði drotningin, „eftir að þessari ráðagerð, sem Gabel telur svo auðvelda, hef- ur verið hrundið í framkvæmd? Hver mun vera æðsta stétt ríkisins ,eða viljið þér ef til vill, að allir verði gerðir jafn-réttháir?“ „Fyrir lögum og rétti, yðar hátign, en framúrskarandi hugvit og gáfur mun samt einatt skipa mönnum í æðri sess.“ „En aðferðina," sagði konungurinn, „að- ferðina, sem slíkur snillingur sem ég ætti að geta fundið fyrirhafnarlítið. Hvernig ætti ég annars að finna hana? Hver ætti að gefa mér innblástur?" „Sá sami, sem samkvæmt Jrjóðsögunni gaf Mattheusi innblástur, J^egar liann ritaði sínar kennisetningar og færði fólkinu hinn guðdómlega boðskap.“ „Við hvern eigið þér?“ spurðu konungs- hjónin undrandi og í einu. Hirðritarinn beygði sig áfram og skaut sínum gáfulegu augum til drottningarinnar og svaraði í lágum og auðmjúkum tón: „Ég á við engilinn, sem sést afskræmdur við hlið hans.“ Hann hafði ekki fyrr sleppt orðinu en mikil liáreysti heyrðist frá anddyrinu. Rétt á eftir var dyrunum hrundið upp, og dyra- vörðurinn kom inn. Konungurinn, sem

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.